top of page

Viðburðir á næstunni

Eldri viðburðir - 2023

Stofnfundur Hringvangs

13/12/2023

Ákveðið hefur verið að stofna til almennra félagasamtaka sem væru sjálfstæður vettvangur fyrir samskipti um hringrásarhagkerfið í byggingariðnaði. Verður þessi vettvangur kallaður Hringvangur. Stofnun hans er framkvæmd innan verkefnisins Nordic Networks for Circular Construction, sem Húsnæðis- og mannvirkjastofnun og Grænni byggð taka þátt í. Grænni byggð mun hafa umsjón með vettvanginum.


Stofnfundur Hringvangs var haldinn þann 13. desember frá 15:00-16:30 í Gullteigi á Grand Hótel. Viðburðurinn hófst með kynningu á markmiðum Hringvangs, umfangi og fjárhagsáætlun. Í kjölfarið hlustuðum við á fjögur hvetjandi erindi um metnaðarfull íslensk hringrásarverkefni, undir fundarstjórn Höllu Helgadóttur (Miðstöð hönnunar og arkitektúrs).


Dagskrá:
→ Áróra Árnadóttir, Grænni byggð - Hringvangur
→ Björk Úlfarsdóttir, ColasEndurunnið í malbik
→ Elín Þórólfsdóttir, EFLA og Perla Dís Kristinsdóttir, Basalt Architects  - Hringrásarveggur
→ Ragnar Ómarsson, VerkísUm meðferð á bundnu kolefni
→ Arnhildur Pálmadóttir og Hrefna Sigurðardóttir, Lendager ÍslandWasteland sýningin

Hlekkur á viðburðinn á facebook.

Hringvangur_Background_Slide.png

Vistvænt skipulag byggðar

30/11/2023

Grænni byggð og Skipulagsstofnun stóðu fyrir morgunfundi um vistvænt skipulag byggðar. Fundurinn var haldinn í húsakynnum Skipulagsstofnunar.


Dagskrá:
10.30 - Ásdís Hlökk Theodórsdóttir, Háskóli Íslands - Opnunarávarp
10.45 - Árni Geirsson, Alta ráðgjöf - Gerð samkeppnisgagna fyrir Keldnaland
11.10 - Íris Þórarinsdóttir, Reitir - Orkureitur - leiðin að BREEAM Excellent
11.35 - Arinbjörn Vilhjálmsson, Garðabæ - Vistvænt skipulag í Garðabæ


Fundarstjóri var Ólafur Árnason, forstjóri Skipulagsstofnunar.


Glærur frá fundinum eru hér.

Morgunfundur-nóv2023-02.png

Orkunýting bygginga á Íslandi – erum við reiðubúin að bæta við 35.000 íbúðum á næstu 6 árum?

31/10/2023

Aukin Orkunýting í byggingum á Íslandi

→ Hvernig stöndum við okkur ?
→ Er orkusparnaður í byggingum á Íslandi nauðsynlegur?
→ Getum við nýtt orkuna betur í byggingum?
→ Hvernig getum við bætt nýtinguna?
→ Höfum við aðgang að nægjanlegri orku til að byggja upp 35.000 íbúðir fyrir 2030 eins og áætlað er ?

Þann 31. október héldum við málstofu í samstarfi við HMS, og Orkuklasinn til að svara þessum spurningum.

Hér er hægt að horfa á upptöku af viðburðinum.

CIRCON_Energy_efficiency_event_Slide.png

Dag­skrá og kynningar:

→ Alma Dagbjört Ívarsdóttir, Mannvit

Orkunýtni bygginga og bætt innivist - notkun á hermihugbúnaði

→ Ásgeir Valur Einarsson, Iðan

Þéttleiki húsa - stórt skref í átt að orkunýtni

→ Egill M Þorbergsson, Veitur
Forðamál fyrir höfuðborgarsvæðið - 100 ára sýn Veitna

→ Katarzyna Jagodzinska, Grænni Byggð

Mikilvægi orkunýtingar þegar horft er til sjálfbærni og hringrásarhagkerfið

→ Matthías Ásgeirsson, VSÓ

Ávinningur af bættri orkunotkun eldri bygginga

→ Þórunn Nanna Ragnarsdóttir, EFLA

Framtíð orkuútreikninga bygginga og hlutverk vélrænna loftræsikerfa

 

Þátttakendur í pallborðinu voru:

→ Ágúst Pálsson, Húsnæðis- og mannvirkjastofnun;

→ Hilmar Hildar Magnsúsarson, Reykjavíkurborg;

→ Íris Þórarinsdóttir, Reitir.

 

Fundarstjóri var Rósbjörg Jónsdóttir, Orkuklasinn.

IMG-9874.jpg

Fundur innan Nordic Circular Summit: Hringrásarhagkerfið í norrænum byggingariðnaði
FRAMTÍÐ HRINGRÁSARHAGKERFISINS Í BYGGINGARIÐNAÐI: KÖNNUN Á NÝSKÖPUNARÞÖRF

18/10/2023

Hvernig getum við, sem hagaðilar byggingargeirans, stutt hringrásarhagkerfið í okkar starfi? Hvað gæti Norræna ráðherranefndin gert til að ýta undir hringrásarsmíði?
Saman könnuðum við þörfina fyrir nýsköpun í byggingariðnaðirum, með áherslu á hvernig hagaðilar geta stuðlað að hringrásarhagkerfi í starfi sínu og hlutverk Norrænu ráðherranefndarinnar í að efla hringrásarsmíði á viðburðinum okkar þann 18. október, sem var hluti af Nordic Circular Summit viðburðinum.

Hér er hægt að horfa á upptöku af viðburðinum.

Dagskrá og kynningar:

Hluti I: Hringrásarhagkerfið í byggingariðnaði – er þetta framkvæmanlegt?
→ Katarzyna Jagodzińska, Verkefnastjóri – Hringrásarbyggingar, Grænni byggð
𝘊𝘪𝘳𝘤𝘶𝘭𝘢𝘳 𝘤𝘰𝘯𝘴𝘵𝘳𝘶𝘤𝘵𝘪𝘰𝘯 𝘪𝘯 𝘵𝘩𝘦 𝘕𝘰𝘳𝘥𝘪𝘤𝘴 – 𝘐𝘴 𝘪𝘵 𝘱𝘰𝘴𝘴𝘪𝘣𝘭𝘦 𝘯𝘰𝘸? (á ensku)
→ Stefan Eriksson, Verkefnastjóri, Vasakronan
𝘏𝘢𝘯𝘥𝘴-𝘰𝘯 𝘦𝘹𝘱𝘦𝘳𝘪𝘦𝘯𝘤𝘦 𝘧𝘳𝘰𝘮 𝘤𝘪𝘳𝘤𝘶𝘭𝘢𝘳 𝘥𝘦𝘤𝘰𝘯𝘴𝘵𝘳𝘶𝘤𝘵𝘪𝘰𝘯 𝘢𝘯𝘥 𝘤𝘰𝘯𝘴𝘵𝘳𝘶𝘤𝘵𝘪𝘰𝘯 𝘰𝘧 𝘒𝘳𝘰𝘮𝘦𝘵 𝘢𝘯𝘥 𝘒𝘈𝘑16 𝘣𝘶𝘪𝘭𝘥𝘪𝘯𝘨𝘴 (á ensku)

 

Hluti II:  Hópumræður
Umræðuefni: Nýstárlegar aðferðir og ný kerfi sem styðja við endurnýtingu byggingarefna. 


Fundarstjóri var Otto-Wille Koste, Demos Helsinki.
 

Slide_long.png

Dagur Grænni byggðar 2023

27/09/2023

Dagur Grænni byggðar var haldið þann 27. september frá 13:00-17:00 í Grósku. Viðburðurinn hófst með 11 áhugaverðum erindum þar sem fagfólk í sjálfbærni í byggingargeiranum flutti. Að loknum kynningum Græna Skóflan var afhent. Verðlaunin hlaut Framkvæmdasýslan - Ríkiseignir og samstarfsaðilar fyrir hjúkrunarheimilið Móberg á Selfossi. 

Á viðburðinum vorum við einnig með sýningar á sjálfbærum byggingarlausnum frá Neuza ValadasStúdíó Flétta, Stúdíó Lúdika, og PAGO.

Sjá viðburð á facebook hér.

Dag­skrá og kynningar:

Fundarstjóri: Þórhildur Fjóla Kristjánsdóttir, EFLA

​→ Opnun stjórnarformanns

(Íris Þórarinsdóttir, Reitir);

​→ Ávarp

(Andrés Ingi Jónsson, þingmaður);

Dagsbirta í byggð

(Anna Sigríður Jóhannsdóttir, Arkitekt FAÍ);

Er græn byggð græn án grænna samgangna?

(Daði Baldur Ottósson, EFLA);

Mannlíf, byggð og bæjarrými

(Magnea Guðmundsdóttir, Stika, og Jón Kjartan Ágústsson, SSH);

Sjálfbær stýring jarðefnaflutninga

(Davíð Thor Guðmundsson og Hallgrímur Örn Arngrímsson, Verkís);

Heildrænar áherslur Svansins

(Guðrún Lilja Kristinsdóttir, UST);

Breytingar á byggingarreglugerð

(Þórunn Lilja Vilbergsdóttir, HMS);

Áhrif flokkunarreglugerðar ESB á byggingarstarfsemi

(Margrét Helga Guðmundsdóttir, Deloitte);

Hringrásarsmíði og Hringvangur

(Katarzyna Jagodzińska, Grænni byggð);

Vistvænir innviðir

13/09/2023

Þann 13. september héldum við hjá Grænni byggð ásamt systurfélögum okkar í Svíþjóð, Finnlandi og Noregi málþing frá 10:00 - 11:30.

Farið var yfir stöðu sjálfbærni í innviðum í hverju landi fyrir sig og síðan fengum við erindi um framúrskarandi dæmi.

Dagskrá:
Núverandi staða sjálfbærni í innviðum frá hverju landi:
- frá Finnlandi Riina Känkänen, formaður FIGBC innviðanefndar og yfirmaður sjálfbærni, Ramboll Finnlandi;
- frá Svíþjóð Sofie Absér, Senior Green Transformation Strategist, Sweco;
- frá Íslandi Alexandra Kjeld, varaformaður Grænni byggð, EFLA;
- frá Noregi Ketil Søyland, verkefnisstjóri sjálfbærni, Norconsult.


Áhugaverðar kynningar á verkefnum:
- "Crown Bridges - How to make Sustainability part of the project" - Minna Tukiainen, Helsinkiborg, Finnland;
- „Minimizing life cycle emissions from power stations“ - Kristinn Jasonarson, Landsvirkjun, Ísland;
- "Hammarängen" - David Nordberg og Martin Lundholm, Skanska, Svíþjóð.

Upptaka af fundinum er hér

Nordic Infrastructure Webinar 2023.png
NordicSustainaleInfrastrucureWebnar

Samnorrænn viðburður: Nordic Circular Construction og New Nordic Bauhaus

13/09/2023

Hvað eiga opinberir aðilar að gera til að ýta á eftir hringrás í framkvæmdum?

Hvernig getum við, sem samfélag, flýtt fyrir umskiptum yfir í loftslagshlutleysi með hugmyndarfræði hringrásarhagkerfisins?

Þann 13. september héldum við málstofu í samstarfi við Demos Helsinki, Grænni byggð Finnlands, og URBAN AGENDA til að svara þessum spurningum.

Dag­skrá og kynningar:

Hluti I: Hvað ættu stjórnvöld að gera til að ýta á eftir hringrás í framkvæmdum?

Stefnumótun sem gerir endurnotkun byggingarvara kleift á Norðurlöndum (á ensku)

(Sidse Zimmermann, Nordic Sustainable Construction verkefni, Danmörk)

Danska verkefnið um vegabréf efnis og gagnaorðabók fyrir endurnýtt byggingarefni (á ensku)

(Katrine Hauge Smith, Yfirráðgjafi - Danish Technological Institute, Danmörk)

Hópumræður um valið efni:
→    Gæði endurnotaðs efnis (Hvernig geta opinber yfirvöld tryggt gæði endurnotaðs efnis?)
→    Kostnaðarábyrgð (Ef viðbótarmat/vinna er nauðsynleg til að gera endurnýtingu mögulega, hvar liggur kostnaðarbyrðin?)
→    Aðgengi gagna (Hvernig geta opinber yfirvöld tryggt að endurnotað efni sé aðgengilegt?)
→    Undirbúningur fyrir framtíðina (Hvaða gögnum væri hægt að safna og hvaða innviði væri hægt að mynda til að forðast vandamál sem við stöndum frammi fyrir núna, í framtíðinni?).

NNCC_Workshop2_Slide_png.png
2023.09.13_NNCC_2nd_workshop_01.JPEG

Hluti II: New Nordic Bauhaus – Hvernig munum við lifa í kolefnishlutlausum heimi árið 2050?

Hvernig viljum við búa og byggja í framtíðinni þar sem við röskum ekki jafnvægi og ofnýtum ekki auðlindir jarðar? Hvað er „hið góða norræna líf“ í hinu CO2-hlutlausa samfélagi framtíðarinnar? Með stuðningi frá New Nordic Bauhaus leggjum við áherslu á lífsstíl framtíðarinnar og munum, ásamt áhorfendum, móta hvernig við getum þróað sameiginlega áherslu á loftslagshlutlaust samfélag framtíðarinnar og daglegt líf þar sem við höldum áfram að dafna og líða vel - helst með nálgunum eins og list og menningu.

Samfélag framtíðarinnar verður að vera loftslagshlutlaust og við verðum að draga verulega úr losun koltvísýrings. En hvernig ætlum við að byggja og búa og hvernig höldum við áfram þegar við vitum í rauninni hvert vandamálið er, við erum með löggjöf, umgjörð og fjárhag en samt gengur nauðsynleg breyting allt of hægt. Hvað getum við gert á Norðurlöndum, hvernig lítur New Nordic Bauhaus út og hvað dreymir okkur um fyrir árið 2050?

Þeir sem fram koma

Antti Lehto, Lektor – Húsnæðishönnun, Aalto University, Finnlandi

Charlotte Nyholm, Arkitekt og sérfræðingur í sjálfbærri byggingu, Vapaa Collective and Granlund, Finnlandi

Gitte Grønfeld Wille, forstjóri, Nordic Culture Point, Finnlandi

Matti Kuittinen, prófessor, Aalto University, Finnlandi
 
Fundarstjóri
Nikolaj Sveistrup, stofnandi og forstjóri , URBAN AGENDA, Danmörk
 
Aðalhlustari
Mads Wolff, forstjóri, Sustainability 2030, Danmörk

2023.09.13_NNCC_2nd_workshop_021.jpg

CIRCON ráðstefna. Hringrás í byggingariðnaði: erum við tilbúin í stökkið?

01/09/2023

Grænni byggð hélt ráðstefnu í Laugardalshöll þann 1. september frá 09:30 til 16:00.

Ráðstefnan var hluti af Iðnaðarsýningunni og unnum við í samstarfi við Húsnæðis- og mannvirkjastofnun að því að sameina ráðstefnuna við sýningu þeirra þar sem styrkþegar úr Aski - Rannsóknasjóði mannvirkja voru í forgrunni.
Á ráðstefnunni var hagnýtri reynslu miðlað um hringrásarhagkerfi í byggingariðnaði og helstu hindranir ræddar.

Dag­skrá og kynningar:

Fundarstjóri: Freyr Eyjólfsson, Verkefnastjóri hringrásarhagkerfisins, SORPA

Fyrri hluti: Hönnun

CIRCON project

(Katarzyna Jagodzińska, Verkefnastjóri, Grænni byggð)

Er verið að steypa nýju fötin keisarans? Þegar gagnsæi og rannsóknir gegna lykilhlutverki í vistvænni mannvirkjagerð

(Sigríður Ósk Bjarnadóttir, Framkvæmdastjóri umhverfis- og gæðamála, Hornsteinn/BM Vallá)

Form fylgir framboði

(Arnhildur Pálmadóttir, Arkitekt og meðeigandi, Lendager Island)

Jarðsetning: tímans rás

(Anna María Bogadóttir, Stofnandi, URBANISTAN)

Pallborðsumræður, fyrri hluti:

→ Bjarma Magnúsdóttir, Umhverfisstjóri, ÍAV
→ Halla Helgadóttir, Framkvæmdarstjóri, Miðstöð hönnunar og arkitektúrs
→ Íris Þórarinsdóttir, Umhverfisstjóri, Reitir
→ Perla Dís Kristinsdóttir, Arkitekt, Basalt Architects
→ Sigríður Maack, Formaður, Arkitektafélags Íslands

Seinni hluti: Efni

Kortlagning – en hvað meira?

(Guðný Káradóttir, Teymisstjóri – Græna leiðin, VSÓ)

Rúststeinar

(Narfi Þorsteinsson, Grafískur hönnuður, Narfi)

Biobuilding: start small, think big

(Jan Dobrowolski, Stofnandi, Studio Ludíka)

PAGO BYLTINGIN (Byggingarefni framtíðar)

(Ólöf Salmon Guðmundsdóttir, Framkvæmdastjóri, PAGO)

CIRCULA PackWall Byggingaplötur

(Sighvatur Lárusson, Stofnandi, CIRCULA)

Pallborðsumræður, seinni hluti:

→ Aðalheiður Atladóttir, Verkefnastjóri, FSRE
→ Ásgeir B. Torfason, Sérfræðingur í fjármálum
→ Björg Ásta Þórðardóttir, Sviðsstjóri mannvirkjasviðs, SI
→ Hulda Hallgrímsdóttir, Verkefnastjóri atvinnuþróunar, Reykjavíkurborg
→ Þórunn Sigurðardóttir, Teymisstjóri, HMS

Boltinn byrjar að rúlla

(Hrafnhildur Sif Hrafnsdóttir, Verkefnastjóri, HMS)

Horfðu á upptöku viðburðarins hér.

Hreyfiafl vistvænnar þróunar í mannvirkjagerð

22/08/2023

Byggjum grænni framtíð: Staða verkefnis ári eftir útgáfu Vegvísis að vistvænni mannvirkjagerð 2030

Þann 22. ágúst frá kl 14:00 verður stöðufundur á vegum Byggjum grænni framtíð. Farið verður yfir stöðuna á Vegvísinum og helstu aðgerðir sem hafa verið framkvæmdar, en einnig verður rætt um næstu skref og framkvæmd endurmats 2024.

Innviðaráðherra og umhverfisráðherra ávarpa fundinn.
- Erindi um Byggjum grænni framtíð. Vegferðin hingað til og sú sem framundan er.
- Pallborðsumræður 1: Byggjum með vistvænni byggingarefnum.
- Pallborðsumræður 2: Byggjum upp vistvænni þekkingu.
- Pallborðsumræður 3: Hreyfiafl til framtíðar.


Formlegri dagskrá lýkur kl. 15:45 en síðan verður boðið upp á veitingar og gestum gefst tími til að spjalla.

Viðburðurinn fer fram í Sjálfstæðissalnum við Austurvöll (Nasa) og í streymi.
Skráning fer fram hér

bgf22.08.jpg

35.000 íbúðir á 10 árum: Hvernig er best að gera þetta?

05/05/2023

Á HönnunarMars 2023 hélt Arkitektafélag Íslands, í samstarfi við Grænni byggð og Húsnæðis og mannvirkjastofnun (HMS), málstofu í Grósku þar sem gæði, umhverfið og samfélag var sett í fyrsta sæti. Málstofan spratt út frá nýrri húsnæðisáætlun, þar sem ríki og sveitafélög ætla að tryggja byggingu 35.000 nýrra íbúða á landinu á næstu 10 árum. 
Málstofan byrjaði á erindum frá arkitektum og rithöfundum, sem gaf innblástur inn í pallborðsumræður. Fundarstjórn var í höndum Brynju Þorgeirsdóttur.

Erindi:
Anna María Bogadóttir, Arkitekt og rithöfundur
Arnhildur Pálmadóttir, Arkitekt
Friðgeir Einarsson, Rithöfundur
Kristján Örn Kjartansson, Arkitekt

Tvískiptur panell:
Andri Snær Magnason, Rithöfundur
Arnhildur Pálmadóttir, Arkitekt
Ásdís Hlökk Theodórsdóttir, Skipulagsfræðingur
Borghildur Sturludóttir, Arkitekt
Dagur B. Eggertsson, Borgarstjóri Reykjavíkur
Gylfi Gíslason, Framkvæmdastjóri Jáverk
Hermann Jónsson, Forstjóri Húsnæðis- og mannvirkjastofnunar
Jóhannes Þórðarson, Arkitekt
Rósa Guðbjartsdóttir, Bæjarstjóri Hafnarfjarð
arbæjar
Sigurður Hannesson, Framkvæmdastjóri Samtaka iðnaðarins
Sigurður Ingi Jóhannsson, Innviðaráðherra

2023.05.05_35000_apartments.jpg

Grænt stökk í mannvirkjagerð

27/04/2023

Síðastliðinn fimmtudag tóku um 300 manns þátt í viðburðinum Grænt stökk í mannvirkjagerð þar sem rætt var um umskipti yfir í sjálfbæran byggingariðnað með hringrásarhagkerfið að leiðarljósi. Meginskilaboð dagsins voru: Við getum þetta, en við verðum að vinna saman til að ná umskiptunum. Lykilfyrirlesturinn var fluttur af Anders Lendager, framkvæmdastjóra Lendager Group, sem sannaði að hringrásarbyggingar eru mögulegar, og afsannaði þá mýtu að hringrásarbyggingar séu alltaf mun dýrari en þær hefðbundnu. Samstarfsfélagi hans á Íslandi, Arnhildur Pálmadóttir, sýndi verkefni sín sem sannaði að þetta er líka möguleiki á Íslandi með því að skoða vandlega þau staðbundnu efni sem eru fáanleg.

Á sömu nótum kynntum við stutt yfirlit yfir nýjar áskoranir og breytingar á hlutverkum hagsmunaaðila þegar skipt er yfir í hringrásarhagkerfi í byggingariðnaði, sem er hluti af niðurstöðum CIRCON verkefnisins. Við ræddum einnig önnur yfirstandandi og nýlokin verkefni, með áherslu á þau sem tengjast Vegvísi að vistvænni mannvirkjagerð 2030.

Dag­skrá og kynningar:

Fundarstjóri: Björg Ásta Þórðardóttir, sviðsstjóri mannvirkjasviðs Samtaka iðnaðarins.

→ Sigurður Ingi Jóhannsson, Innviðaráðherra, Ávarp

The invention of the (un)natural system (á ensku)

(Anders Lendager, Arkitekt, stofnandi og framkvæmdastjóri Lendager Group, Lendager Group)

Nordic Sustainable Construction: Norræna vegferðin í vistvænni mannvirkjagerð (á ensku)

(Helle Redder Momsen, Verkefnastjóri Nordic Sustanable Construction)

Byggjum grænni framtíð: Íslenska vegferðin í vistvænni mannvirkjagerð

(Þóra Margrét Þorgeirsdóttir, Framkvæmdastjóri Mannvirkja og sjálfbærni, HMS)

Hvernig byggir Grænni byggð grænni framtíð?

(Áróra Árnadóttir, Framkvæmdastjóri, Grænni Byggð)

Urban society and urban agglomeration. The circular economy (á ensku)

(Jukka Heinonen, Prófessor, Háskóli Íslands)

Arkitektúr og mannvirkjagerð með sjálfbærni og hringrásarhagkerfið að leiðarljósi

(Arnhildur Pálmadóttir, Arkitekt og meðeigandi, Lendager á Íslandi)

Circular construction: Can we continue with business as usual? (á ensku)

( Katarzyna Jagodzińska, Verkefnastjóri, Grænni byggð)

Loftslagsmarkmið, vistvæn steypa og byggingariðnaður

(Sigríður Ósk Bjarnadóttir, Framkvæmdastjóri umhverfis- og gæðamála, Hornsteinn)

Askur styður við stökkið

( Hrafnhildur Sif Hrafnsdóttir, Verkefnastjóri Asks – mannvirkjarannsóknasjóðs, HMS)

Samtal um grænt stökk í mannvirkjagerð, vegferðina, tækifærin, áskoranirnar og nýja nálgun

Anders Lendager (Arkitekt, stofnandi og framkvæmdastjóri Lendager Group, Lendager Group) og Sigurður Hannesson (Framkvæmdastjóri Samtaka iðnaðarins)

Viðburðurinn var á vegum Húsnæðis- og mannvirkjastofnunar í samstarfi við Samtök iðnaðarins og Grænni byggð.

Skýrslan Losunar lausir verkstaðir, skilgreiningar, mörk og staðan á norðurlöndunum, gefin út í mars síðastliðinn

16/03/2023

Í fyrsta hluta verkefnisins  var áhersla lögð á að safna gögnum og vinna að skýrslu sem skilgreinir kerfismörk og hugtök tengd losunarlausum verkstöðum. Skýrslan lýsir einnig stöðunni í dag og er góður undirbúningur fyrir næstu skref verkpakkans. Sameiginlegar skilgreiningar á hugtökum verkstaða og hvaða losun er innifalin er grunnur að norrænum reglugerðum og leiðbeiningum á þessu sviði.

Hér er hægt að nálgast skýrsluna:

https://www.norden.org/da/node/79878

Net-viðburður var haldinn til að kynna útgáfu skýrslunnar, þá var einnig sagt frá samstarfsneti verkefnisins og sýnt frá heimsókn á verkstaðinn The Green Construction Site of the Future. Kynnir viðburðarins var Hólmfríður Bjarnadóttir og sérfræðingar frá Volvo CE og SiteHub kynntu hugmyndir sinna fyrirtækja.​

Hér er hægt að horfa á upptöku af viðburðinum:

Brýn þörf á breytingum

19/01/2023

Vinnustofan Hringborð Hringrásar um innleiðingu hringrásar í byggingariðnaði fór fram í Grósku þann 19. janúar þar sem hagaðilar í geiranum áttu innihaldsríkt samtal um aðkallandi verkefni og brýna þörf á að hraða breytingum.

Vinnustofan var skipulögð af Miðstöð hönnunar og arkitektúrs, Arkitektafélagi Íslands, Eflu og Grænni byggð, í samstarfi við Samtök iðnaðarins, Reykjavíkurborg og FSRE

Um fjörutíu áhrifamiklir aðilar úr allri virðiskeðju byggingariðnaðarins, frá fasteignafélögum, verktökum, verkfræðistofum, arkitektastofum, stofnunum og stjórnvöldum tóku þátt í vinnustofunni.

Niðurstaða vinnustofunnar var skýr:

Ísland stendur nágrannaþjóðum að baki þegar kemur að innleiðingu hringrásar í byggingariðnaði og brýn þörf er fyrir breytingar.

Hvað þarf að gera?

> Nýjar leikreglur.

> Markaðstorg fyrir notaðar byggingarvörur.

> Öflugt rannsóknasetur byggingariðnaðar.

> Hanna nýjar byggingar með áherslu á endurnýtingu og sveigjanleika.

> Endurhanna og nýta eldri byggingar.

> Grænt hvatakerfi fyrir byggingariðnaðinn.

> Sterkt samstarf allra hagaðila.

Það er ljóst að mikil þörf er á markvissu samtali og samvinnu þvert á alla virðiskeðjuna. Á fundinum var mikill samhljómur þátttakenda um mikilvægi þess að allur geirinn sameinist um að virkja aðferðir hringrásar í byggingariðnaði þvert á hagsmuni. Nú þegar er verið að vinna í þessum málum víða í samfélaginu en öll keðjan verður að taka saman höndum til að tryggja árangur.

2023.01.19_Hringras.png

Í upphafi fundar fengu þátttakendur innblástur frá erlendum sérfræðingunum, Helle Redder Momsen, skrifstofustjóra Nordic Sustainable Construction frá Danmörku og Alexander van Leersum, forstöðumanni Build to Impact í Rotterdam, Hollandi sem miðluðu af reynslu sinni af innleiðingu hringrásar í byggingar verkefnum. Arnhildur Pálmadóttir arkitekt og Áróra Árnadóttir hjá Grænni byggð fjölluðu um nýleg dæmi um verkefni hér á landi þar og almennt um stöðu mála á Íslandi varðandi innleiðingu hringrásar í byggingariðnaði.

Opinn fundur um sama málefni fór fram síðar um daginn í Grósku þar sem gestir fengu innsýn inn þetta mikilvæga samtal ásamt því að líflegar panelumræður fóru fram.

Í pallborði tóku þátt; Borghildur Sturludóttir, deildarstjóri hjá skipulagsfulltrúa Reykjavíkurborgar, Friðjón Sigurðsson, framkvæmdastjóri þróunarsviðs hjá Reitum, Halldór Eiríksson, formaður Samark, Hermann Jónasson, forstjóri HMS og Kristrún Tinna Gunnarsdóttir, forstöðumaður stefnumótunar og sjálfbærni hjá Íslandsbanka.

Verkefnið Hringborg hringrásarinnar er unnið með stuðningi frá Aski Mannvirkjarannsóknarsjóði.

bottom of page