Norræn samantekt og ferðavenjur foreldra
Rannsóknarverkefni um byggingarúrgang
Í samvinnu við Mannvirkjastofnun vann Grænni byggð rannsóknarverkefni um gerð leiðbeininga um meðhöndlun byggingarúrgangs. Verkstjórn var í höndum Grænni byggðar í samvinnu við Mannvirkjastofnun en Grænni byggð fékk EFLU verkfræðistofu, VSÓ Ráðgjöf og Verkís til samstarfs. Afrakstur rannsóknarverkefnisins má sjá hér að neðan en hægt er að lesa skýrslurnar með því að smella á þær.
Hringrásarhagkerfið og byggingariðnaðurinn
Úttekt á hættulegum efnum í byggingar- og niðurrifsúrgangi og áætlun um meðferð þeirra
Kortlagning byggingarúrgangs
Leiðbeiningar um meðhöndlun byggingarúrgangs
Rannsóknarverkefni um vistvottunarkerfi
Grænni byggð vann einnig í samvinnu við Mannvirkjastofnun rannsóknarverkefni um vistvottunarkerfi bygginga. Valin voru tvö vistvottunarkerfi til rannsóknar - vistvottunarkerfi BREEAM og vistvottunarkerfi Svansins. Markmið verkefnisins var að framkvæma prófanir og leiðbeiningar á kerfunum og rannsaka hvernig þau aðlagast aðstæðum á íslenskum byggingarmarkaði. Skýrslurnar má lesa með því að smella á þær hér að neðan.
BREEAM vistvottunarkerfi fyrir byggingar - kynningarbæklingur
Orkukröfur BREEAM 2016 og reynslan af að uppfylla þær í íslenskum verkefnum
BREEAM - sjónræn þægindi
Yfirlit yfir orkunotkun, orkuverð og orkukröfur til upphitunar í íslenskum byggingum
Vistferilsgreiningar - Umhverfisáhrif bygginga og byggingarefna frá vöggu til grafar
Reynslan af umhverfisvottuninni Svanurinn fyrir byggingar - Hluti I Almenn yfirferð
BREEAM In-Use
BREEAM Byggingarefni og úrgangur
- Kröfurnar og hvernig hefur gengið að uppfylla þær á Íslandi
Samgöngu- og landnotkunarkröfur BREEAM international 2016
BREEAM gæða- og umhverfisstjórnun - Kröfurnar og hvernig hefur gengið að uppfylla þær á Íslandi
BREEAM Byggingarefni
- Kynningarbæklingur um kröfurnar
Reynslan af umhverfisvottuninni Svanurinn fyrir byggingar - Hluti II Stigamatskerfið
Viðauka má lesa hér
Grænni fjölbýli
Umhverfis- og auðlindaráðuneytið veitti Grænni byggð styrk til þess að vinna leiðbeiningar fyrir fjölbýlishús sem vilja stuðla að umhverfisvænni áherslum í sínum rekstri. Leiðbeiningarnar voru unnar í samstarfi við Sorpu og Eignaumsjón. Leiðbeiningarnar má lesa með þvi að smella á bæklinginn hér að neðan.
Grænni fjölbýli
Annað útgefið efni
Vistvottunarkerfi fyrir byggingar - greining á hagkvæmni og aðlögunarhæfni erlendra vottunarkerfa fyrir íslenskan byggingarmarkað
Híbýli og heilsa - heilsufarsleg áhrif bygginga og ávinningur vistvænna bygginga
Efnisgæði - yfirlit yfir algeng byggingarefni, eiginleika þeirra og helstu umhverfisáhrif
Umhverfisvæn bygging í íslensku samhengi
Vistvænt skipulag þéttbýlis
Umhverfislýsing byggingarefna