Viðburðir á næstunni
Sjá viðburði Grænni byggðar á facebook hér:
https://www.facebook.com/pg/graennibyggd/events/?ref=page_internal
Stefnumótunarfundur Grænni byggðar með aðilum 17 mars
Aðilafundur Grænni byggðar um stefnumótun verður auglýstur nánar síðar í tölvupósti til aðildarfélaga Grænni byggðar.
21. apríl 2021 Aðalfundur Grænni byggðar
Aðalfundur Grænni byggðar
Dagskrá fundarins fer eftir hefðbundnum aðalfundarstörfum samkvæmt lögum félagsins:
1. Skýrsla stjórnar um störf félagsins á liðnu ári.
2. Starfsáætlun stjórnar fyrir næsta starfsár.
3. Fjárhagsáætlun stjórnar fyrir næsta starfsár.
4. Reikningsskil.
5. Tillögur og breytingar á lögum félagsins.
6. Kjör stjórnar.
7. Kjör skoðunarmanna (sbr. 9.gr.)
8. Önnur mál.
28. apríl Nordic Green Building Council Webinar
Embodied - carbon - LCA and Nordic harmonizations
Norrænt webinar á vegum GBC - á Norðurlöndum um embodied Carbon - life cycle assessments of fleira.
Fyrri viðburðir
Sjálfbærni í byggingariðnaði
IÐAN fræðslusetur í samstarfi við Grænni byggð stendur fyrir fyrirlestrarröð um sjálfbærni í byggingariðnaði.
Sjá alla fyrirlestrana sem hafa verið og upptökur frá þeim á heimasíðu IÐUNNAR hér
10. desember: Sjálfbærni í byggingariðnaði (3/6)
IÐAN fræðslusetur í samstarfi við Grænni byggð stendur fyrir fyrirlestrarröð um sjálfbærni í byggingariðnaði. Þann 10. desember fer fram síðasti fyrirlesturinn á þessu ári en þá koma til okkar Sandra Rán Ásgrímsdóttir hjá Mannvit og Árni Stefánsson frá Húsasmiðjunni. Frítt er á fyrirlesturinn en nauðsynlegt er að skrá sig hjá Iðan.
Dagskrá:
Velkomin
Ásgeir Valur Einarsson, IÐAN og Elísabet Sara Emilsdóttir, Grænni byggð
Árni Stefánsson, Forstjóri Húsasmiðjunnar
Húsasmiðjan hefur unnið hörðum höndum að sinni umhverfisstefnu en Árni mun fjalla um samfélagsskýrslu Bygma sem Húsasmiðjan hefur verið hluti af um nokkurra ára skeið. Einnig mun hann kynna í hvaða vöruflokkum Húsasmiðjan stendur sterkast í þegar kemur að sjálfbærni og vistvænum vörum.
Sandra Rán Ásgrímsdóttir, Mannvit
Sandra mun m.a. fjalla um sjálfbærniskýrslu Mannvits. Mannvit kom að hönnun Kársnesskóla í Kópavogi sem kemur til með að fá Svansvottun. Einnig vinna þau að BREEAM Communities vottun á reitnum sem markast af Suðurlandsbraut, Grensásvegi og Ármúla. Þetta erindi er breyting frá áður auglýstri dagskrá.
Fyrirlesturinn má horfa á hér.
19. nóvember: Sjálfbærni í byggingariðnaði (2/6)
IÐAN fræðslusetur í samstarfi við Grænni byggð stendur fyrir fyrirlestrarröð um sjálfbærni í byggingariðnaði. Þann 19. nóvember verður fjallað um Svansvottun.
Velkomin
Ásgeir Valur Einarsson, IÐAN og Elísabet Sara Emilsdóttir, Grænni byggð
Finnur Sveinsson, umhverfisráðgjafi
- Finnur er menntaður umhverfisfræðingur og hefur lengst af starfað sem ráðgjafi. Árið 2015 ákvað hann að fara í framkvæmd á einbýlishúsi sínu í Urriðahollti en þar reisti hann fyrsta Svansvottaða íbúðarhúsið á Íslandi.
Gísli Sigmundsson, húsasmíðameistari
- Gísli er líklega reyndasti húsasmiður á Íslandi þegar kemur að því að reisa hús sem stenst Svansvottun. Gísli á heiðurinn að húsinu hans Finns í Urriðarhollti og ætlar að segja frá hvernig og hver munurinn er á að byggja slíkt hús í samanburði við venjuleg hús.
Fyrirlesturinn má horfa á hér.
12. nóvember: Svansvottaðar endurbætur á skrifstofuhúsnæði
Þann 18.september fengu Reitir afhent Svansleyfi fyrir endurbætur á skrifstofuhúsnæði Umhverfisstofnunar við Suðurlandsbraut 24. Framkvæmdirnar voru þær fyrstu sem fengu vottun samkvæmt viðmiðum Svansins fyrir umhverfisvottaðar endurbætur. Á kynningarfundinum verður farið yfir reynsluna og lærdóminn af verkefninu. Fundarstjóri er Þórhildur Fjóla Kristjánsdóttir, framkvæmdastjóri Grænni byggðar.
Glærukynningar frá fundinum má finna hér að neðan:
Svansvottaðar endurbætur - hver eru viðmiðin fyrir vottun
Guðrún Lilja Kristinsdóttir, Umhverfisstofnun
Lærdómur eiganda hússins
Íris Þórarinsdóttir, umhverfisstjóri Reita
Reynsla framkvæmdaraðila
Þráinn Fannar Gunnarsson, verkefnastjóri hjá THG arkitektum
Skrifstofa Umhverfisstofnunar - rafrænt innlit með forstjóra Umhverfisstofnunar
31. október: Grænn rekstur fjölbýlishúsa á Lifum betur
Grænni byggð hélt erindi um Grænni rekstur fjölbýlishúsa á ráðstefnunni Lifum betur um heilsu og umhverfismál. Húsfélög geta haft mjög jákvæð áhrif á umhverfið, hvort sem það tengist viðhaldi, sorpmálum, sameign, samgöngum eða garðyrkju. Þórhildur Fjóla og Elísabet Sara segja frá þeim fjölmörgu leiðum sem hægt er að fara og sum ráð eru einnig viðeigandi fyrir þá sem búa í einbýli, tvíbýli eða þríbýli.
Fyrirlesturinn var unninn út frá leiðbeiningum um Grænni fjölbýli sem Grænni byggð vann árið 2019 og eru aðgengilegar hér á heimasíðunni undir útgefið efni.
Hér er hægt að horfa á fyrirlesturinn:

29. október: Sjálfbærni í byggingariðnaði (1/6)
IÐAN fræðslusetur í samstarfi við Grænni byggð stendur fyrir fyrirlestrarröð um sjálfbærni í byggingariðnaði. Þann 20. október verða flutt eftirfarandi erindi.
Velkomin
Ásgeir Valur Einarsson, IÐAN og Þórhildur Fjóla Kristjánsdóttir, Grænni byggð
Bergur Helgason, Gæða- og Öryggisstjóri hjá ÞG Verk ehf.
Bergur ætlar að að tala um hvernig hægt sé að lækka kostnað tengt sorphirðu og lækka kolefnissporið í leiðinni. Árangur ÞG Verks í umhverfismálum hefur verið gífurlegur undanfarin misseri.
Berglind Ósk Ólafsdóttir, Verkefnastjóri umhverfismála hjá BYKO
Berglind segir okkur stuttlega frá umhverfisstefnu BYKO en einnig verða fleiri starfsmenn sem koma til með að flytja erindi sitt s.s. söluráðgjafar iðnaðarmann
Fyrirlesturinn má horfa á hér.
28. október: Græn skuldabréf og fasteignir
Morgunfundur um gildi umhverfisvottana bygginga fyrir fjárfesta, í samstarfi við IcelandSif. Þórhildur Kristjánsdóttir, framkvæmdastjóri hjá Grænni byggð, mun opna fundinn og kynna mismunandi vottanir t.d. BREEAM, Leed og Svaninn.
Aðilar frá bæði Reginn og Reitum fara yfir reynslu sína af slíkum vottunum, kosti, galla og ávinning fyrir fasteignaeigendur. Frá Reginn munum við heyra frá Baldri Má Helgasyni, framkvæmdastjóra viðskipta og Sunnu Hrönn Sigmarsdóttur, framkvæmdastjóra Knatthallar ehf. og Kvikmyndahallar ehf., og frá Reitum mætir Einar Þorsteinsson, fjármálastjóri.
Þá mun Gréta Þórsdóttir Björnsson, arkitekt hjá Umhverfis- og skipulagssviði Reykjavíkurborgar einnig flytja erindi.
Í kjölfarið mun gefast tími til umræðna um gildi þessara vottana fyrir fjárfesta - bæði frá sjónarhóli hlutabréfa- og skuldabréfafjárfesta.
Glærukynningar má finna hér að neðan:
Vottanir bygginga - Þórhildur Fjóla Kristjánsdóttir, Grænni byggð
BREEAM vottun - Baldur Már Helgason og Sunna Hrönn Sigmarsdóttir, Reginn
Reynsla Reita af Svansvottun endurnýjunar skrifstofuhúsnæðis - Einar Þorsteinsson, Reitir
Reynsla Reykjavíkurborgar - Gréta Þórsdóttir Björnsson
11. september: Aðalfundur Grænni byggðar
Aðalfundur félagsins var haldinn föstudaginn 11.september kl.12-14 í Hannesarholti, Grundarstíg 10. Þar fóru hefðbundin aðalfundarstörf fram.
Það þarf að skrá sig á fundinn með tölvupósti á netfangið
Árlegur Dagur Grænni byggðar verður haldinn í Tjarnarsal Ráðhúss Reykjavíkur fimmtudaginn 10. september 2020. Líkt og síðustu ár verða flutt áhugaverð erindi af leiðandi fagfólki úr geirum hönnunar, skipulags og mannvirkjagerðar þar sem sjálfbærni í hinu byggða umhverfi verður höfð að leiðarljósi.
Meðal fyrirlesara er norski arkitektinn Tine Hegli sem telja má til einna helstu sérfræðinga heims á sviði kolefnishlutlausrar hönnunar. Tine starfar fyrir hina margrómuðu Snöhetta arkitektastofu.
Áhersla verður lögð á að streyma fundinum en einnig verður tekið á móti takmörkuðum fjölda gesta í Ráðhús Reykjavíkur. Í ár verður viðburðurinn ókeypis en nauðsynlegt er að skrá sig á fundinn sama hvort fylgst verði með á staðnum eða í streymi.
Sjá viðburð á facebook hér.
Smellið hér til að sjá upptöku af ráðstefnunni í heild sinni
Velkomin
Fundarstjóri, Kristjana Ósk Jónsdóttir, stjórnarmaður í Grænni byggð og markaðsstjóri hjá Reitum
Ávarp
Ásmundur Einar Daðason, ráðherra húsnæðismála (og félags- og barnamálaráðherra)
Carbon neutral buildings
Tine Hegli , Arkitekt hjá Snøhetta, og prófessor við Arkitektaháskólann í Osló, AHO
(myndbandsupptöku vantar)
Grænni byggingar hjá borginni
Dagur B. Eggertsson, Borgarstjóri
Glærur frá fyrirlestrinum
Upptaka af fyrirlestrinum
Reynsla verktaka af BREEAM
Bjarma Magnúsdóttir, verkefnastjóri hjá Íslenskum aðalverktökum, ÍAV
Græn skuldabréf og fasteignir
Hrefna Ösp Sigfinnssdóttir, framkvæmdastjóri hjá Landsbankanum
Umhverfisstefna BYKO
Sigurður Brynjar Pálsson, forstjóri BYKO
Aðlögun að loftslagsbreytingum með grænum lausnum
Halldóra Hreggviðsdóttir framkvæmdastjóri Alta
Kolefnisspor viðmiðunarhúss á Íslandi
Ólafur H. Wallevik, prófessor við Háskóla Reykjavíkur, forstöðumaður Rannsóknarstofu byggingariðnaðarins hjá NMÍ
Vistvænn vegvísir fyrir byggingariðnaðinn
Þóra Margrét Þorgeirsdóttir, sérfræðingur hjá Húsnæðis- og mannvirkjastofnun
Glærur frá fyrirlestrinum
Upptaka af fyrirlestrinum
Vistvottun skipulags
Íris Þórarinsdóttir, umhverfisstjóri hjá Reitum fasteignafélagi
Glærur frá fyrirlestrinum
Grænni byggð og loftslagmálin
Ragnar Ómarsson, Verkís stjórnarformaður Grænni byggðar
Glærur frá fyrirlestrinum
Upptaka af fyrirlestrinum
Loftslagsáskorun arkitekta
Björn Guðbrandsson, arkitekt hjá ARKÍS
Glærur frá fyrirlestrinum
25. ágúst: Rafhjólavæðingin - Hádegisfundur
Græna Orkan, Grænni byggð og Hjólafærni stóðu fyrir hádegisfundi um rafhjólavæðinguna á Íslandi þann 25. ágúst hjá Grænu Orkunni (Orkustofnun).
Hér má finna upptökur frá viðburðinum
Fundarstjóri: Anna Margrét Kornélíusdóttir, verkefnastjóri Grænu orkunnar.
Dagskrá:
Reynslan hjá Reykjavíkurborg
Kristinn Eysteinsson, Verkefnastjóri hjá Reykjavíkurborg
Rafhjólareynslan hjá Norðurorku
Erla Björg Guðmundsdóttir, mannauðsstjóri Norðurorku
Örflæði: Lítill mótor fyrir stuttar ferðir
Jökull Sólberg Auðunsson
Aðstaða við verslunar- og þjónustukjarna
Fulltrúi frá Reginn fasteignafélagi
Rafhjól: Þjónn á þeytingi
Sesselja Traustadóttir - Hjólafærni
Aðgangur ókeypis.
Ráðstefnan "Nordic Climate Forum for Construction" verður haldin í fjarfundi 27. ágúst 2020 kl. 8:00 til 13:30 á íslenskum tíma. Hún er skipulögð af Trafik-, Bygge og Boligstyrelsen í Danmörku í samstarfi við aðrar húsnæðis- og mannvirkjastofnanir á Norðurlöndunum, Swedish Life Cycle Center í Svíþjóð og Norrænu ráðherranefnda. Húsnæðis- og mannvirkjastofnun (HMS) er íslenskur samstarfsaðili í þessu norræna samstarfi.
Tilgangur hennar er að eiga samtal um hvernig Norðurlöndin geti komið betri stjórn á umhverfisáhrif byggingariðnaðarins og dregið úr losun frá húnsæðis- og mannvirkjagerð.
Ráðstefnan var haldin í fyrsta sinn árið 2019 í Malmö í framhaldi af yfirlýsingu norrænu byggingarmálaráðherra um aukið samstarf til að draga úr losun frá húsnæði og byggingariðnaði á Norðurlöndunum og er stefnt að því að hún verði árlegur viðburður.
Aðgangur er ókeypis og öllum opinn, en þessi viðburður er einkum ætlaður aðilum byggingariðnaðarins, stjórnvöldum, háskólasamfélaginu og fjármálageiranum. Ráðstefnan fer fram á ensku.
Nánari upplýsingar um viðburðinn má finna hér.
Skráning fer fram hér.
Morgunspjall: Ferðavenjur í Borgarumhverfi eftir Covid19
23. júní kl 08:30-10:00 í Borgartúni 21 og á Zoom
Skipulagsmál, loftslagsmál og endurskoðun langtímamarkmiða eftir Covid19
- Hrafnhildur Bragadóttir, Skipulagsstofnun
Hvað segja tölurnar um ferðavenjur á höfuðborgarsvæðinu
- Daði Baldur Ottósson, EFLA
Græni stígurinn í Græna treflinum
- Þráinn Hauksson, Landslag
Sveigjanlegri ferðavenjur og grænir innviðir
- Ólöf Kristjánsdóttir,Mannvit
Kófið, lýðheilsan og skipulagsmálin
- Matthildur. Kr. Elmarsdóttir, Alta
Stökk í átt að sjálfbærni eftir Covid10 - 15 maí
Grænni byggð var með erindi um Grænni innviði á hádegisfundi Loftslagsverkfallsins um Stökk í átt að sjálfbærni eftir Covid19.
Erindi Grænni byggðar má finna hér
BREEAM - viðauki 7. maí 8:30
Grænni byggð mun kynna samantekt úr niðurstöðum rannsóknarverkefna um BREEAM vottunarkerfið og hugmyndir af BREEAM - IS viðauka.
BREEAM í Bretlandi hefur samþykkt þessa vinnu og mun fara yfir tillögur Grænni byggðar 2020.
Á þessum Zoom morgunfundi verður Þórhildur með kynningu í gegnum Zoom - og eftir kynninguna verður hægt að taka þátt í umræðum.
29.apríl Sjálfbærni í byggingariðnaði með IÐUNNI
Um er að ræða fjóra fyrirlestra sem eru:
Sjálfbærni í mannvirkjagerð - almenn yfirferð Ragnar Ómarsson
Stig - Ný sjálfbærni viðmið Evrópusambandins (Levels) Ragnar Ómarsson
Bundið - kolefni (Embodied carbon) - Ragnar Ómarsson
Hringrásarhagkerfið í byggingariðnaði - áskoranir og möguleikar - Þórhildur Fjóla Kristjánsdóttir
Námskeiðið er haldið í samvinnu við Grænni byggð sem er vettvangur um sjálfbæra þróun byggðar.
24. febrúar 2020 - 10 ára afmæli Grænni byggðar!
Erindi:
Þórhildur Fjóla Kristjánsdóttir - niðurstöður rannsóknarverkefna
Myndir frá starfinu við ávarp frá Hlökk Theodórsdóttur
Loftlsagsmál og byggingar, Harpa Birgisdóttir
5. desember 2019 - Íslenskt límtré, timburbyggingar og húsgögn
Morgunfundur um íslenskt límtré, timburbyggingar og húsgögn.
Fundurinn er haldinn í Hafnarborg (Strandgötu 34, Hafnarfirði) þann 5. desember og er öllum opinn.
Fundarstjóri er Ragnar Ómarsson, stjórnarformaður Grænni byggðar og byggingarfræðingur hjá Verkís
Umhverfisáherslur fyrir byggingar í Hafnarfirði
Sigurður Haraldsson, formaður Umhverfis og skipulagssviðs Hafnarfjarðar
Framleiðsla á límtré úr íslensku timbri - niðurstöður rannsókna
Logi Unnarson Jónsson, byggingartæknifræðingur, LímtréVírnet
Hönnun timburbygginga á Íslandi
Sigurður Einarsson
Arkitekt, Batteríið arkitektar
Timburbyggingar
Svava Björk Hjaltalín Jónsdóttir, arkitekt
Að hanna húsgögn úr íslensku timbri
Björn Steinar Blumenstein, hönnuður
Staða nytjaskóga á Íslandi
Hlynur Gauti Sigurðsson, Framkvæmdastjóri Landsambands skógareigenda
Sjá viðburðinn á facebook hér
14. nóvember 2019 - Gæði innilofts, orkunýtni og vistvottun
Fimmtudagur 14. nóvember
kl. 13:00
Nýsköpunarmiðstöð Íslands - Árleynir 2-8, 112 Reykjavík
Haustráðstefna um gæði innilofts, orkunýtni og vistvottun.
Aðgangur er ókeypis, allir velkomnir.
Dagskrá:
Af hverjum erum við hér í dag? Áskoranir varðandi loftræstingu og orkunýtni
Björn Marteinsson, dósent við HÍ ·
Orkuhermun og Raunnotkun – Er gott samhengi þar á milli?
Sveinn Áki, verkfræðingur, VSB verkfræðistofa ·
Loftræstilausnir í BREEAM verkefnum
Brynjar Örn Árnason, verkfræðingur hjá EFLU
Loftræsting og loftgæði í skólum: Svansvottaðurskóli á Íslandi
Alma Dagbjört Ívarsdóttir, verkfræðingur, Mannvit
Áherslur Betri Bygginga
Ólafur H. Wallevik, forstöðumaður Rb. á NMÍ
SIMIEN Orkuútreikningar fyrir BREEAM verkefni
Bjartur Guangze Hu, verkfræðingur, VSÓ Ráðgjöf
Betri byggingar
Sylgja Dögg, verkfræðingur Rb. og EFLU ·
Rekstur loftræstikerfa og orkunýtni á Íslandi
Karl H. Karlsson, Blikksmiðjan og HR ·
Sjá viðburð á facebook hér.
31. október 2019 - Vinnustofa um BREEAM
Fimmtudagur 31. október
kl. 9:00
EFLA - Lyngháls 4, 110 Reykjavík
Vinnustofa um BREEAM í samhengi við íslenskar aðstæður. Hvernig er aðlögun að staðbundnum aðstæðum almennt hagað? Hver er reynslan af BREEAM hérlendis og hvernig er hægt að aðlaga kröfur BREEAM að íslenskum aðstæðum?
Sérfræðingar miðla reynslu sinni af BREEAM og hvernig hægt sé að mæta kröfum þess að teknu tilliti til íslenskra aðstæðna.
Athugið að hér er um að ræða lokaða vinnustofu meðal aðila að Grænni byggð.
31. október 2019 - Fræðslufundur um BREEAM
Fimmtudagur 31. október
kl.14:00
Verkís - Ofanleiti 2, 103 Reykjavík
Grænni byggð býður til fundar með BREEAM sérfræðingnum Glen Watts í húsakynnum Verkís næstkomandi fimmtudag. Til umræðu verða stefnur og straumar í new construction og in-use útgáfum BREEAM vistvottunar og hvernig BREEAM aðlagast að íslenskum aðstæðum.
BREEAM er eitt þekktasta og mest notaða vistvottunarkerfi heims. Kerfið tekur til margra þátta er varða áhrif byggingar á umhverfið en íslenskum byggingum með BREEAM-vottun fer ört fjölgandi ár frá ári. Öll velkomin!
Sjá viðburðinn á facebook hér.
23. október 2019 - Hvað á að gera við metanið?
Græna orkan, Grænni Byggð og Orkustofnun stóðu fyrir hádegisviðburði sem bar yfirskriftina "Hvað á að gera við metanið?" miðvikudaginn 23. október.
Ræddar voru leiðir til að auka nýtingu metans hér á landi, og hlutverk þess í orkuskiptum, ekki síst í ljósi fyrirhugaðrar aukningar í framleiðslu þess með tilkomu gas- og jarðgerðarstöðvar Sorpu.
Dagskráin samanstóð af eftirfarandi erindum:
Björn Halldórsson framkvæmdastjóri Sorpu
María Jóna Magnúsdóttir, framkvæmdastjóri Bílgreinasambandsins
Hafsteinn Helgason, sviðsstjóri Þróunar hjá EFLU verkfræðistofu
Auður Nanna Baldvinsdóttir, viðskiptaþróunarstjóri hjá Landsvirkjun og stjórnarformaður Grænu orkunnar
Guðmundur B. Friðriksson, skrifstofustjóri Skrifstofu umhverfisgæða hjá Reykjavíkurborg
Fundarstjóri var Þórhildur Fjóla Kristjánsdóttir, framkvæmdastjóri Grænni byggðar.
18. október 2019 - Morgunspjall um hönnun á skólalóðum fyrir vistvænar samgöngur
Morgunspjall um hönnun á skólalóðum fyrir vistvæna ferðamáta.
Ólöf Kristjánsdóttir fagstjóri samgangna hjá Mannvit Verkfræðistofu flutti erindi byggt á gögnum úr og vinnu við Hjólreiðaáætlun Reykjavíkurborgar.
Herborg Árnadóttir frá Alta Ráðgjöf flutti erindi byggt á MS-verkefni sínu sem byggir á virkum samgöngum útfrá sjónarhóli hreyfingar og hvernig hvernig megi hanna borgarumhverfi sem hvetji til þess.
Hermann Georg Gunnlaugsson frá Teiknistofunni Storð flutti erindi undir yfirskriftinni "Skólalóðin frá sjónarhorni barna - Hönnun skólalóða og sjálfbærar samgöngur" en Hermann varði nýlega meistararitgerð sína í skipulagsfræðum sem fjallaði um umhverfi leikskóla og áhrif þéttingu byggðar á leikskólalóðir.
Dagur Bollason frá Grænni byggð fjallaði um hver aðkoma stjórn- og skipulagsyfirvalda getur verið til þess að hlúa betur að sjálfbærum samgöngum á öllum skólastigum.
Morgunspjall um Svaninn í samstarfi við Umhverfisstofnun og Svaninn var 31. maí, kl. 08:30-10:00 í Borgartúni 7b.
Guðrún Lilja Kristinsdóttir frá Umhverfisstofnun/Svaninum fjallaði almennt um Svaninn fyrir íslenskar byggingar en Umhverfisstofnun er að vinna að Svansvottun í endurbætum á sínu skrifstofuhúsnæði í eigu Reita.
Finnur Sveinsson fór yfir reynsluna af notkun Svansins bæði í sínu eigin einbýlishúsi og einnig reynslunni við IKEA blokkina sem nýlega fékk Svansvottun.
Björn Marteinsson frá Háskóla Íslands fór yfir orkulausnina sem var valinn í Svansvottaða húsið hans Finns og Þórdísar.
Rakel Sif S. Thorarensen nýútskrifaður byggingartæknifræðingur, flutti áhugavert erindi um byggingarúrgang í samhengi við Svansvottaða byggingu.
Gregory Thompson er arkitekt og sérfræðingur hjá California Institute for Energy and Environment, sem er undirstofnun UC Berkeley. Hann fjallaði um Oakland EcoBlock verkefnið þar sem markmiðið er að útfæra heildstæða lausn til að stórbæta vistspor þegar byggðs umhverfis. Kynnir var Halldór Eiríksson hjá T.ark arkitektum.
Hægt er að skoða fyrirlestur Gregory's hér.
11. apríl 2019 - Dagur Grænni Byggðar
Ráðstefna um sjálfbærni í byggingariðnaði og skipulagi var haldin í HT103 á Háskólatorgi 11 apríl síðastliðinn. Ráðstefnan var vel sótt og mörg fróðleg erindi voru flutt.
Fyrirlestrar
The Property Sectors Roadmap towards 2050
Katharina Bramslev, Framkvæmdastjóri Norwegian Green Building Council
Hugmyndir Byggingarfélags um bíllausan lífstíl
Magnús Jensen, arkitekt
European trends in Green Buildings
James Drinkwater, forstjóri Evróputengslanets European Green Building Councils
Sjálfsþurft
Margrét Harðardóttir, arkitekt Studio Granda
Sjálf / bær
Anna María Bogadóttir, arkitekt
Ólöf Örvarsdóttir, Sviðsstjóri umhverfis- og skipulagssviðs Reykjavíkurborgar
Grænar lausnir fyrir byggingar
Helga Jóhanna Bjarnadóttir, verkfræðingur og sviðsstjóri umhverfissviðs EFLU
Jón Pálmi Guðmundsson, framkvæmdastjóri Urriðaholts
Hvernig er að búa í vistvottuðu húsi?
Finnur Sveinssson, umhverfisfræðingur og verkefnastjóri fyrsta svansvottaða hússins á Íslandi
Ný rannsóknarverkefni um sjálfbærar byggingar
Ólafur H. Wallevik, forstöðumaður Rb. á NMÍ
22. september 2019 - Bíllausi dagurinn
Mæting í gönguna kl 12:30 á Klambratúni, gatnamótunum við milli Miklubrautar og Lönguhlíðar.
Í ár stendur til að halda stærsta og veglegasta Bíllausa dag sem haldinn hefur verið á Íslandi. Dagskráin hefst klukkan 12:30 þann 22. september þegar Bíllausa gangan / Reykjavík Mobility Parade á Klambratúni, á horninu á Miklubraut og Lönguhlíð með öllum mögulegum fararskjótum öðrum en einkabílnum mun liðast af stað í átt að Lækjartorgi. Samstaða og gleði verður allsráðandi í göngunni og restina reka tveir hljóðlátir raf-Strætóar sem gangandi geta fengið far með.
Á Lækjartorgi og Lækjargötu verður margt um að vera. Viðburður verður við gatnamót Bankastrætis og Lækjargötu með ávörpum og tónlist. Hjólaviðgerðir, kynningarstandar, matarvagnar og fleira.

21. mars 2019 - Morgunspjall um reynsluna af BREEAM vistvottunarkerfinu
Egill Guðmundsson, arkitekt hjá ARKÍS fjallaði um reynslu þeirra, en ARKÍS hefur komið að fleiri verkefnum sem unnið hafa með BREEAM vottunarkerfið.
Olga Árnadóttir, arkitekt og verkefnistjóri umhverfismála hjá Framkvæmdasýslunni, fjallaði um niðurstöður í mastersverkefni sínu: Vistvottunarkerfið BREEAM Greining á aðlögunarhæfni matskerfisins að íslenskum aðstæðum
Karl Magnús Karlsson og Ólafur Axelsson hjá VA arkitektum fjölluðu um Hönnun á Sundhöllinni sem nýlega hefur hlotið BREEAM hönnunarvottun.
Elín Vignisdóttir, landfræðingur hjá Verkís fjallaði um Reynslu ráðgjafa í BREEAM verkefnum.
7. mars 2019 - Morgunspjall um ALDIN Biodome, ræktun kryddjurta og gróðurveggi
Fyrirlestrar frá morgunspjalli um ALDIN Biodome, Grænaveggi og ræktun kryddjurta, 7. mars
Ræktun Kryddjurta - Auður Rafnsdóttir, höfundur bókarinnar: Kryddjurtaræktun fyrir byrjendur
Gróðurveggir, gerðir, upsetning og umhirða - Magnús Bjarklind, garðyrkjufræðingur hjá EFLU verkfræðistofu
Aldin Biodome verkefnið - Hjördís Sigurðardóttir, skipulagsfræðingur
31. janúar 2019 - Morgunspjall um arkitektúr, vellíðan fólks og félagslega sjálfbærni
6. desember 2018 - Morgunspjall um hönnun á gatnamótum fyrir fjölbreyttan ferðamáta
Skipulagsmál og ferðavenjur, Sóley Ósk Sigurgeirsdóttir, Skipulagsstofnun
Borgin, áskoranir og framtíðarsýn varðandi fjölbreyttar samgöngur, Edda Ívarsdóttir, Reykjavíkurborg
Hönnunarleiðbeiningar , Bryndís Friðriksdóttir, EFLA
Hönnun gatnamóta með áherslu á almenningssamgöngur, Lilja Guðríður Karlsdóttir, Viaplan
Hönnun gatnamóta með tilliti til hjólreiða, Hörður Bjarnason, Mannvit
Hönnun gatnamóta við þjóðvegi, Erna B Hreinsdóttir, Vegagerðin
22. nóvember 2018 - Morgunspjall um viðmið fyrir vistvæna byggingu
Fyrirlestrar frá morgunspjalli um viðmið fyrir vistvæna byggingu 22.nóv 2018
Hér má finna fyrirlestrana frá morgunspjallinu um viðmið fyrir vistvæna byggingu. Við fengum fyrirlestra um:
Rýmisnýtingu og sveigjanleika frá Önnu Sigríði Jóhannsdóttur, VA arkitektar
Efnisnotkun og úrgang, frá Gyðu Mjöll Ingólfsdóttir, EFLU og Elínu Vignisdóttur Verkís
Innivist, frá Söndru Rán Ásgrímsdóttur, Mannvit
Lóðamál og vistvænar samgöngur, Ólöf Kristjánsdóttir, Mannvit
Orkumál og stýringu, frá Þórhildi Fjólu Kristjánsdóttir, Grænni byggð
8. nóvember 2018 - Ráðstefna um byggingarúrgang
Fyrirlestrar frá ráðstefnu um byggingarúrgang 8. nóvember 2018
Reynsla Norðmanna, Eirik Wærner, ráðgjafi hjá Multiconsult í Osló
Lover, avfallsplan, kildesortering.
Niðurrif og nýbyggingar – staðan og áskoranir hjá Reykjavíkurborg, Rúnar Gunnarsson, deildarstjóri frumhönnunar hjá Reykjavíkurborg
Getur BIM minnkað byggingarúrgang? – Ingibjörg Birna Kjartansdóttir, BIM þróunarstjóri hjá ÍSTAK
BREEAM verkefni hjá Framkvæmdasýslu ríkisins – Olga Árnadóttir, verkefnastjóri umhverfismála hjá Framkvæmdasýslu ríkisins
Reynsla verktaka – Eyjólfur Bjarnason, gæðastjóri hjá Framkvæmdafélaginu Arnarhvoli.
Örn Tryggvi Johnsen, verkefna- og rekstrarstjóri hjá ÞG Verk
Endurvinnslufarvegur byggingarúrgangs – Arngrímur Sverrisson, rekstrarstjóri hjá Gámaþjónustunni hf.
Dæmi um endurvinnslu/endurnýtingu – Harpa Þrastardóttir, umhverfis- og gæðastjóri hjá Hlaðbæ Colas
Reynsla úr norskum verkefnum – Haukur Þór Haraldsson, ráðgjafi hjá Verkís
Efnismiðlun Sorpu – Guðmundur Tryggvi Ólafsson, rekstarstjóri endurvinnslustöðva hjá Sorpu
Leiðbeiningar um byggingarúrgang – Jón Guðmundsson, fagstjóri byggingarsviðs hjá Mannvirkjastofnun
31. janúar 2018 - Morgunspjall Græna Stíginn í Græna Treflinum
Græni stígurinn í græna treflinum fyrirlestrar frá morgunspjalli Grænni byggðar þann 1. nóvember 2018
Brynjólfur Jónsson framkvæmdastjóri Skógræktarfélags Íslands
17. október - Umhverfisdagur Atvinnulífsins
Umhverfisdagur atvinnulífsins 17 október 2018, fyrirlestur um Vistvæn mannvirki
Framkvæmdastjóri Grænni byggðar, Þórhildur Fjóla Kristjánsdóttir hélt fyrirlestur um Vistvæn mannvirki á Umhverfisdegi atvinnulífsins.
17. ágúst 2018 - Morgunspjall um vistferilsgreiningar og sjálfbærni í Grænlenskum byggingariðnaði
Vistferilsgreiningar og sjálfbærni í Grænlenskum Byggingariðnaði.
Frá morgunspjalli Grænni byggðar þann 17. ágúst 2018
Vistferilsgreiningar í byggingariðnaði eftir Gyðu Mjöll Ingólfsdóttur, umhverfisverkfræðing hjá EFLU.
Sjálfbærni áherslur í Grænlenskum Byggingariðnaði eftir Ragnar Ómarsson, byggingarfræðing hjá Verkís.
1. mars 2018 - Morgunspjall um samgöngusamninga
Virka Samgöngusamningar? Frá morgunspjalli Grænni byggðar þann 1. mars um samgöngusamninga
Reynsla Orkuveitu Reykjavíkur, Hólmfríður Sigurðardóttir, Umhverfisstjóra hjá Orkuveitu Reykjavíkur
Reynslan hjá Landspítalanum eftir Huldu Steingrímsdóttur
Reynsla Reykjavíkurborgar eftir Lóu Birnu Birgisdóttur.
Reynsla Verkís eftir Elínu Vignisdóttur.
11. nóvember 2016 - Málþing um Visthúsið í Garðabæ
Frá málþingi um Visthúsið í Garðabæ 11. nóvember 2016. VSB verkfræðistofa býður heim.
Af hverju Visthús? eftir Finn Sveinsson, umhverfisfræðing og byggingarstjóra
Hönnun á húsinu, eftir Sigurð Einarsson, arkitekt Batteríið Arkitektar
Tæknilegar lausnir, Örn Guðmundsson, verkfræðingur hjá VSB verkfræðistofa
12. febrúar 2017 - Námskeið um Umhverfisvænt efnisval
Kynningar frá námskeiði um Umhverfisvænt efnisval Febrúar 2017:
Vistvæn efni, Árni Friðriksson, ASK arkitektar.
Umhverfisyfirlýsingvöru, Helga Jóhanna Bjarnadóttir, EFLA verkfræðistofa