
Viðburðir 2026
Velkomin á viðburðasíðu Grænni byggðar! Hér má finna upplýsingar um komandi viðburði og lýsingar á liðnum viðburðum.
Mynd: Ástrós Steingrímsdóttir
Viðburðir á næstunni
Tengslahópar
Tengslahópar Grænni byggðar eru fyrir aðila að Grænni byggð. Ef þú ert aðili og villt skrá þig í tengslahóp, sendu okkur línu á gb@graennibyggd.is
Hóparnir eru: Vottanir, Vistvænir innviðir, Lífsferilsgreiningar, Hringrásarhagkerfið og Opinber innkaup (aðeins fyrir starfsfólk opinberra stofananna).
Næstu fundir eru auglýstir hér:
Tengslahópur GB um vottanir: 11.05.2026
Tengslahópur GB um hringrásarhagkerfið: 27.05.2026
Tengslahópur GB um LCA: 27.05.2026
Tengslahópur GB um hringrásarhagkerfið: 24.06.2026
Aðalfundur Grænni byggðar 2026
22/04/2026

Aðalfundur félagsins fór fram þann 22. apríl kl. 14.30 - 16.30 í húsnæði HMS í Borgartúni 21. Allir aðilar að Grænni byggð eiga rétt á að senda fulltrúa á aðalfund.
Dagskrá aðalfundar:
1. Skýrsla stjórnar um störf félagsins á liðnu ári.
2. Starfsáætlun stjórnar fyrir næsta starfsár.
3. Fjárhagsáætlun stjórnar fyrir næsta starfsár.
4. Reikningsskil.
5. Tillögur og breytingar á lögum félagsins.
6. Kjör stjórnar.
7. Kjör skoðunarmanna (sbr. 9.gr.)
8. Önnur mál.
Auk hefðbundinna aðalfundarstarfa hélt starfsfólk Grænni byggðar stuttar kynningar á tveimur spennandi verkefnum sem Grænni byggð vinnur að:
Handbók um endurnotkun
Grænni byggð vinnur að útgáfu handbókar um endurnotkun yfir 35 algengra íslenskra efna og vara og upplýsingar um lagalegar kröfur sem endurnotað efni og vörur þurfa að uppfylla til að vera samþykktar til notkunar.
Bestu starfsvenjur í New European Bauhaus á Norðurslóðum
Kynning á verkefnum sem eru dæmi um góðar leiðir til þess að byggja á sjálfbæran, fallegan og inngildandi hátt í erfiðum veður- og umhverfisaðstæðum (eins og á Norðurslóðum) og hlutu nýlega viðurkenningu frá Bauhaus Goes North verkefninu.
Kjörin var ný stjórn Grænni byggðar og mun hún koma saman eins fljótt og auðið er og skipuleggja næsta starfsár.
Við þökkum fulltrúum aðildarfélaga okkar kærlega fyrir komuna og erum spennt að halda samstarfinu áfram á starfsárinu 2026-2027!
Ársskýrslu, ársreikning og fundargerð aðalfundar má finna á heimasíðu Grænni byggðar undir Rekstur.



Miðdegisfundur: Byggjum fyrir fólk
22/01/2026

Nærri öllum okkar tíma er varið inni í eða nálægt byggingum, sem gerir þær að ómissandi hluta af lífi okkar. Undanfarið hafa áhrif hins byggða umhverfis á heilsu okkar fengið aukna athygli og spurningar um það hvernig við bætum byggingar til að stuðla að líkamlegri og andlegri heilsu fólks verið til umræðu á Íslandi. Á sama tíma stefnum við einnig að því að bæta umhverfisáhrif bygginga. Geta þessir tveir þættir unnið saman?
Þessari spurningu og fleirum var svarað á viðburðinum sem Grænni byggð, Sjálfbærnistofnun Háskóla Íslands og Norræna húsið héldu í Norræna húsinu, fimmtudaginn 22. janúar, kl. 15:00-16:30.
Anna María Bogadóttir, fundarstjóri opnaði viðburðinn áður en Andri Snær Magnason tók við og hélt stutta hugvekju. Þá var evrópska verkefnið New European Bauhaus kynnt, en verkefnið miðar að því að samþætta umhverfislega sjálfbærni við velsæld notenda byggingarumhverfisins og mögulega þess til þess að mæta ýmsum áskorunum sem við stöndum frammi fyrir á Íslandi.
Í kjölfarið áttu sér stað pallborðsumræður um menningarlegar, félagslegar og umhverfislegar víddir byggingarumhverfisins og hvernig við getum blandað þeim saman, og þátttakendur í pallborði svöruðu spurningum úr sal.
Mikill áhugi var fyrir viðburðinum, hámarksskráningarfjöldi náðist fljótt og yfir 200 manns tóku þátt bæði í sal og í streymi. Upptöku frá viðburðinum má finna í spilaranum hér að neðan.
Dagskrá:
1. Fundarstjóri opnar viðburðinn.
2. Andri Snær Magnason heldur stutt erindi.
3. NEB kynning og aðrar kynningar.
4. Pallborðsumræður.
5. Spurningar úr sal.
6. Samantekt.
Í pallborði sátu:
Arnhildur Pálmadóttir, s. ap arkitektar
Elín Þórólfsdóttir, HMS
Halla Helgadóttir, Hönnunarmiðstöð
Páll Jakob Líndal, ENVALYS og HR
Fundarstjóri var Anna María Bogadóttir, arkitekt.



Miðdegisfundur: BREEAM New Construction v. 7
20/01/2026
.png)
Þann 30. September 2025 var ný útgáfa af BREEAM handbókinni gefin út (BREEAM New Construction Version 7) og öll ný verkefni sem skráð eru frá 27. Janúar 2026 munu falla undir v.7. Nýja útgáfan leggur áherslu á kolefnislosun á líftíma byggingar, líffræðilegan fjölbreytileika og vistfræði, seiglu og efnisval.
Grænni byggð hélt fund til undirbúnings fyrir notkun nýju útgáfunnar með fulltrúum frá BRE til að kynna breytingarnar og veita aðilum tækifæri á að spyrja spurninga og fá svör. Fundurinn var einungis fyrir aðila að Grænni byggð. Góð mæting var á fundinn og Florence Owens og Alejandro Romero frá BRE kynntu nýjar áherslur BREEAM v. 7 og bárust svo margar góðar spurningar frá þáttakendum.
