
Viðburðir 2026
Velkomin á viðburðasíðu Grænni byggðar! Hér má finna upplýsingar um komandi viðburði og lýsingar á liðnum viðburðum.
Mynd: Ástrós Steingrímsdóttir
Viðburðir á næstunni
Tengslahópar
Tengslahópar Grænni byggðar eru fyrir aðila að Grænni byggð. Ef þú ert aðili og villt skrá þig í tengslahóp, sendu okkur línu á gb@graennibyggd.is
Hóparnir eru: Vottanir, Vistvænir innviðir, Lífsferilsgreiningar, Hringrásarhagkerfið og Opinber innkaup (aðeins fyrir starfsfólk opinberra stofananna).
Næstu fundir eru auglýstir hér.
Miðdegisfundur: Byggjum fyrir fólk
22/01/2026

Nærri öllum okkar tíma er varið inni í eða nálægt byggingum, sem gerir þær að ómissandi hluta af lífi okkar. Undanfarið hafa áhrif hins byggða umhverfis á heilsu okkar fengið aukna athygli og spurningar um það hvernig við bætum byggingar til að stuðla að líkamlegri og andlegri heilsu fólks verið til umræðu á Íslandi. Á sama tíma stefnum við einnig að því að bæta umhverfisáhrif bygginga. Geta þessir tveir þættir unnið saman?
Þessari spurningu og fleirum verður svarað á viðburðinum sem Grænni byggð, Sjálfbærnistofnun Háskóla Íslands og Norræna húsið halda í Norræna húsinu, fimmtudaginn 22. janúar, kl. 15:00-16:30.
Viðburðurinn hefst á því að kynna evrópska verkefnið New European Bauhaus, sem miðar að því að samþætta umhverfislega sjálfbærni við velsæld notenda byggingarumhverfisins og mögulega þess til þess að mæta ýmsum áskorunum sem við stöndum frammi fyrir á Íslandi.
Í kjölfarið verða pallborðsumræður um menningarlegar, félagslegar og umhverfislegar víddir byggingarumhverfisins og hvernig við getum blandað þeim saman.
Drög að dagskrá:
1. Fundarstjóri opnar viðburðinn.
2. Andri Snær Magnason heldur stutt erindi.
3. NEB kynning og aðrar kynningar.
4. Pallborðsumræður.
5. Spurningar úr sal.
6. Samantekt.
Í pallborði sitja:
Arnhildur Pálmadóttir, s. ap arkitektar
Elín Þórólfsdóttir, HMS
Halla Helgadóttir, Hönnunarmiðstöð
Páll Jakob Líndal, ENVALYS og HR
Fundarstjóri er Anna María Bogadóttir, arkitekt.
Hámarksfjölda skráninga í persónu á viðburðinn hefur verið náð og lokað hefur verið fyrir skráningu í hús. Við bendum á að viðburðinum verður streymt (sjá spilarann hér að ofan eða hnappinn hér að neðan).
Miðdegisfundur: BREEAM New Construction v. 7
20/01/2026
.png)
Þann 30. September 2025 var ný útgáfa af BREEAM handbókinni gefin út (BREEAM New Construction Version 7) og öll ný verkefni sem skráð eru frá 27. Janúar 2026 munu falla undir v.7. Nýja útgáfan leggur áherslu á kolefnislosun á líftíma byggingar, líffræðilegan fjölbreytileika og vistfræði, seiglu og efnisval.
Grænni byggð hélt fund til undirbúnings fyrir notkun nýju útgáfunnar með fulltrúum frá BRE til að kynna breytingarnar og veita aðilum tækifæri á að spyrja spurninga og fá svör. Fundurinn var einungis fyrir aðila að Grænni byggð. Góð mæting var á fundinn og Florence Owens og Alejandro Romero frá BRE kynntu nýjar áherslur BREEAM v. 7 og bárust svo margar góðar spurningar frá þáttakendum.
