top of page

Eldri viðburðir - Fyrir 2021

Svansvottaðar endurbætur á skrifstofuhúsnæði

12/11/2020

Þann 18.september fengu Reitir afhent Svansleyfi fyrir endurbætur á skrifstofuhúsnæði Umhverfisstofnunar við Suðurlandsbraut 24. Framkvæmdirnar voru þær fyrstu sem fengu vottun samkvæmt viðmiðum Svansins fyrir umhverfisvottaðar endurbætur. Á kynningarfundinum var farið yfir reynsluna og lærdóminn af verkefninu. Fundarstjóri var Þórhildur Fjóla Kristjánsdóttir, framkvæmdastjóri Grænni byggðar. Glærukynningar frá fundinum má finna hér að neðan:

→ Svansvottaðar endurbætur - hver eru viðmiðin fyrir vottun
(Guðrún Lilja Kristinsdóttir, Teymisstjóri, Umhverfisstofnun);

→ Lærdómur eiganda hússins
(Íris Þórarinsdóttir, Umhverfisstjóri, Reitir);

→ Reynsla framkvæmdaraðila
(Þráinn Fannar Gunnarsson, Verkefnastjóri, THG arkitektar).​

Skrifstofa Umhverfisstofnunar - rafrænt innlit með forstjóra Umhverfisstofnunar

Grænn rekstur fjölbýlishúsa á Lifum betur

31/10/2020

Grænni byggð hélt erindi um Grænni rekstur fjölbýlishúsa á ráðstefnunni Lifum betur um heilsu og umhverfismál. Húsfélög geta haft mjög jákvæð áhrif á umhverfið, hvort sem það tengist viðhaldi, sorpmálum, sameign, samgöngum eða garðyrkju. Þórhildur Fjóla og Elísabet Sara segja frá þeim fjölmörgu leiðum sem hægt er að fara og sum ráð eru einnig viðeigandi fyrir þá sem búa í einbýli, tvíbýli eða þríbýli.
Fyrirlesturinn var unninn út frá leiðbeiningum um Grænni fjölbýli sem Grænni byggð vann árið 2019 og eru aðgengilegar hér.

Hér er hægt að horfa á fyrirlesturinn:

Græn skuldabréf og fasteignir

28/10/2020

Morgunfundur um gildi umhverfisvottana bygginga fyrir fjárfesta, í samstarfi við IcelandSif. Þórhildur Kristjánsdóttir, framkvæmdastjóri hjá Grænni byggð, opnaði fundinn og kynna mismunandi vottanir t.d. BREEAM, Leed og Svaninn. Aðilar frá bæði Reginn og Reitum fara yfir reynslu sína af slíkum vottunum, kosti, galla og ávinning fyrir fasteignaeigendur. Gréta Þórsdóttir Björnsson, arkitekt hjá Umhverfis- og skipulagssviði Reykjavíkurborgar einnig flutti erindi.
Glærukynningar má finna hér að neðan:

→ Vottanir bygginga

(Þórhildur Fjóla Kristjánsdóttir, Grænni byggð);
→  BREEAM vottun

(Baldur Már Helgason og Sunna Hrönn Sigmarsdóttir, Reginn);
→  Reynsla Reita af Svansvottun endurnýjunar skrifstofuhúsnæðis

(Einar Þorsteinsson, Reitir);
→  Reynsla Reykjavíkurborgar

(Gréta Þórsdóttir Björnsson, Umhverfis- og skipulagssviði Reykjavíkurborgar).

Aðalfundur Grænni byggðar

11/09/2020

Aðalfundur félagsins var haldinn föstudaginn 11.september kl.12-14 í Hannesarholti, Grundarstíg 10. Þar fóru hefðbundin aðalfundarstörf fram.

​

Fundargerð aðalfundar hér.

Dagur Grænni byggðar 2020

10/09/2020

Árlegur Dagur Grænni byggðar var haldinn í Tjarnarsal Ráðhúss Reykjavíkur fimmtudaginn 10. september 2020. Líkt og síðustu ár voru flutt áhugaverð erindi af leiðandi fagfólki úr geirum hönnunar, skipulags og mannvirkjagerðar þar sem sjálfbærni í hinu byggða umhverfi verður höfð að leiðarljósi. Meðal fyrirlesara er norski arkitektinn Tine Hegli sem telja má til einna helstu sérfræðinga heims á sviði kolefnishlutlausrar hönnunar.

 

Sjá viðburð á facebook hér.

​

Smellið hér til að sjá upptöku af ráðstefnunni í heild sinni. Glærur og kynningarupptökur má finna hér að neðan.


Dagskrá:
→ Velkomin

(Fundarstjóri, Kristjana Ósk Jónsdóttir, Stjórnarmaður í Grænni byggð og markaðsstjóri hjá Reitum);

​

→ Ávarp

(Ásmundur Einar Daðason, Ráðherra húsnæðismála);

Carbon neutral buildings (á ensku; myndbandsupptöku vantar)

(Tine Hegli , Arkitekt, Snøhetta og Prófessor, Arkitektaháskólann í Osló, AHO);

​

Grænni byggingar hjá borginni

(Dagur B. Eggertsson, Borgarstjóri);

​

 

Reynsla verktaka af BREEAM

(Bjarma Magnúsdóttir, Verkefnastjóri, ÍAV);

 

Græn skuldabréf og fasteignir

(Hrefna Ösp Sigfinnssdóttir, Framkvæmdastjóri,  Landsbankinn);

 

Umhverfisstefna BYKO

(Sigurður Brynjar Pálsson, Forstjóri, BYKO);

 

Aðlögun að loftslagsbreytingum með grænum lausnum

(Halldóra Hreggviðsdóttir, Framkvæmdastjóri, Alta);

 

Kolefnisspor viðmiðunarhúss á Íslandi

(Ólafur H. Wallevik, Prófessor, Háskólinn í Reykjavík og Forstöðumaður Rannsóknarstofu byggingariðnaðarins, NMÍ);

 

Vistvænn vegvísir fyrir byggingariðnaðinn

(Þóra Margrét Þorgeirsdóttir, Sérfræðingur, Húsnæðis- og mannvirkjastofnun);

 

Vistvottun skipulags

(Íris Þórarinsdóttir, Umhverfisstjóri, Reitir);

 

Loftslagsáskorun arkitekta

(Björn Guðbrandsson, Arkitekt, ARKÍS);

 

Grænni byggð og loftslagmálin

(Ragnar Ómarsson, Byggingafræðingur, Verkís og Stjórnarformaður Grænni byggðar);

​Norræn netráðstefna um umhverfismál og byggingariðnaðinn

27/08/2020

Ráðstefnan "Nordic Climate Forum for Construction" var haldin í fjarfundi 27. ágúst 2020 kl. 8:00 til 13:30 á íslenskum tíma. Hún var skipulögð af Trafik-, Bygge og Boligstyrelsen í Danmörku í samstarfi við aðrar húsnæðis- og mannvirkjastofnanir á Norðurlöndunum, Swedish Life Cycle Center í Svíþjóð og Norrænu ráðherranefnda. Húsnæðis- og mannvirkjastofnun (HMS) er íslenskur samstarfsaðili í þessu norræna samstarfi.

Tilgangur hennar var að eiga samtal um hvernig Norðurlöndin geti komið betri stjórn á umhverfisáhrif byggingariðnaðarins og dregið úr losun frá húnsæðis- og mannvirkjagerð. Viðburðurinn fór fram á ensku.

​

Nánari upplýsingar um viðburðinn má finna hér.

Upptökur af kynningunum má finna hér.

Rafhjólavæðingin - Hádegisfundur

25/08/2020

Græna Orkan, Grænni byggð og Hjólafærni stóðu fyrir hádegisfundi um rafhjólavæðinguna á Íslandi þann 25. ágúst hjá Grænu Orkunni (Orkustofnun).


Fundarstjóri: Anna Margrét Kornélíusdóttir, verkefnastjóri Grænu orkunnar.

Dagskrá:
→ Reynslan hjá Reykjavíkurborg
(Kristinn Eysteinsson, Verkefnastjóri, Reykjavíkurborg);
→ Rafhjólareynslan hjá Norðurorku
(Erla Björg Guðmundsdóttir, Mannauðsstjóri, Norðurorku);
→ Örflæði: Lítill mótor fyrir stuttar ferðir
(Jökull Sólberg Auðunsson);
→ Aðstaða við verslunar- og þjónustukjarna
(Baldur Már Helgason, Framkvæmdastjóri, Reginn);
→ Rafhjól: Þjónn á þeytingi
(Sesselja Traustadóttir, Hjólafærni).

Upptökur frá viðburðinum:

Morgunspjall: Ferðavenjur í Borgarumhverfi eftir Covid19

23/06/2020

Dagskrá:

→ Skipulagsmál, loftslagsmál og endurskoðun langtímamarkmiða eftir Covid19

(Hrafnhildur Bragadóttir, Skipulagsstofnun);

→ Hvað segja tölurnar um ferðavenjur á höfuðborgarsvæðinu

(Daði Baldur Ottósson, EFLA);

→ Græni stígurinn í Græna treflinum

(Þráinn Hauksson, Landslag);

→ Sveigjanlegri ferðavenjur og grænir innviðir

(Ólöf Kristjánsdóttir, Mannvit);

→ Kófið, lýðheilsan og skipulagsmálin

(Matthildur. Kr. Elmarsdóttir, Alta).

Stökk í átt að sjálfbærni eftir Covid19

15/05/2020

Grænni byggð var með erindi um Grænni innviði á hádegisfundi Loftslagsverkfallsins um Stökk í átt að sjálfbærni eftir Covid19. 

​

Erindi Grænni byggðar má finna hér.

07/05/2020

BREEAM - viðauki

Grænni byggð kynnti samantekt úr niðurstöðum rannsóknarverkefna um BREEAM vottunarkerfið og hugmyndir af BREEAM - IS viðauka.
BREEAM í Bretlandi hefur samþykkt þessa vinnu og mun fara yfir tillögur Grænni byggðar 2020.

Sjálfbærni í byggingariðnaði með IÐUNNI

29/04/2020

Námskeiðið var haldið af IÐAN í samvinnu við Grænni byggð.

Um var að ræða fjóra fyrirlestra sem eru:
→ Sjálfbærni í mannvirkjagerð - almenn yfirferð

(Ragnar Ómarsson);
→ Stig - Ný sjálfbærni viðmið Evrópusambandins (Levels)

(Ragnar Ómarsson);
→ Bundið - kolefni (Embodied carbon)

(Ragnar Ómarsson);
→ Hringrásarhagkerfið í byggingariðnaði - áskoranir og möguleikar

(Þórhildur Fjóla Kristjánsdóttir).

10 ára afmæli Grænni byggðar!

24/02/2020

Erindi:

→ Niðurstöður rannsóknarverkefna

Þórhildur Fjóla Kristjánsdóttir);

→ Myndir frá starfinu við ávarp frá Hlökk Theodórsdóttur

→ Loftlsagsmál og byggingar

(Harpa Birgisdóttir).

Morgunfundur: Íslenskt límtré, timburbyggingar og húsgögn

05/12/2019

Morgunfundur um íslenskt límtré, timburbyggingar og húsgögn. Fundurinn var haldinn í Hafnarborg (Strandgötu 34, Hafnarfirði). Fundarstjóri var Ragnar Ómarsson, stjórnarformaður Grænni byggðar og byggingarfræðingur hjá Verkís. Sjá viðburðinn á facebook hér.

Dagskrá:

→ Umhverfisáherslur fyrir byggingar í Hafnarfirði
(Sigurður Haraldsson, Formaður Umhverfis og skipulagssviðs Hafnarfjarðar);
→ Framleiðsla á límtré úr íslensku timbri - niðurstöður rannsókna
(Logi Unnarson Jónsson, Byggingartæknifræðingur, LímtréVírnet);
→ Hönnun timburbygginga á Íslandi
(Sigurður Einarsson, Arkitekt, Batteríið arkitektar);
→ Timburbyggingar
(Svava Björk Hjaltalín Jónsdóttir, Arkitekt)
→ Að hanna húsgögn úr íslensku timbri
(Björn Steinar Blumenstein, Hönnuður)
→ Staða nytjaskóga á Íslandi
(Hlynur Gauti Sigurðsson, Framkvæmdastjóri, Landsambands skógareigenda).

Gæði innilofts, orkunýtni og vistvottun

14/11/2019

Haustráðstefna um gæði innilofts, orkunýtni og vistvottun. Sjá viðburð á facebook hér.

Dagskrá:
→ Af hverjum erum við hér í dag? Áskoranir varðandi loftræstingu og orkunýtni
(Björn Marteinsson, Dósent, Háskóli Íslands);
→ Orkuhermun og Raunnotkun – Er gott samhengi þar á milli?
(Sveinn Áki, Verkfræðingur, VSB Verkfræðistofa);
→ Loftræstilausnir í BREEAM verkefnum
(Brynjar Örn Árnason, Verkfræðingur; EFLA);
→ Loftræsting og loftgæði í skólum: Svansvottaðurskóli á Íslandi
(Alma Dagbjört Ívarsdóttir, Verkfræðingur, Mannvit);
→ Áherslur Betri Bygginga
(Ólafur H. Wallevik, Forstöðumaður Rannsóknarstofu byggingariðnaðarins, NMÍ);
→ SIMIEN Orkuútreikningar fyrir BREEAM verkefni
(Bjartur Guangze Hu, Verkfræðingur, VSÓ Ráðgjöf);
→ Betri byggingar
(Sylgja Dögg Sigurjónsdóttir, Verkfræðingur Rb., EFLA);
→ Rekstur loftræstikerfa og orkunýtni á Íslandi
(Karl H. Karlsson, Blikksmiðjan og HR).

Vinnustofa um BREEAM

31/10/2019

Vinnustofa um BREEAM í samhengi við íslenskar aðstæður. Hvernig er aðlögun að staðbundnum aðstæðum almennt hagað? Hver er reynslan af BREEAM hérlendis og hvernig er hægt að aðlaga kröfur BREEAM að íslenskum aðstæðum?

Sérfræðingar miðla reynslu sinni af BREEAM og hvernig hægt sé að mæta kröfum þess að teknu tilliti til íslenskra aðstæðna.

Athugið að hér var um að ræða lokaða vinnustofu meðal aðila að Grænni byggð.

​Fræðslufundur um BREEAM

31/10/2019

Grænni byggð skipulagði fund með BREEAM sérfræðingnum Glen Watts í Verkís húsinu. Til umræðu var stefnur og straumar í new construction og in-use útgáfum BREEAM vistvottunar og hvernig BREEAM lagar að íslenskum aðstæðum.

BREEAM er eitt þekktasta og mest notaða vistvottunarkerfi heims. Kerfið tekur til margra þátta er varða áhrif byggingar á umhverfið en íslenskum byggingum með BREEAM-vottun fer ört fjölgandi ár frá ári.

​

Sjá viðburðinn á facebook hér.

Hvað á að gera við metanið?

23/10/2019

Græna orkan, Grænni Byggð og Orkustofnun stóðu fyrir hádegisviðburði sem bar yfirskriftina "Hvað á að gera við metanið?" miðvikudaginn 23. október.
Ræddar voru leiðir til að auka nýtingu metans hér á landi, og hlutverk þess í orkuskiptum, ekki síst í ljósi fyrirhugaðrar aukningar í framleiðslu þess með tilkomu gas- og jarðgerðarstöðvar Sorpu.

Dagskráin samanstóð af eftirfarandi erindum:

→ Björn Halldórsson framkvæmdastjóri Sorpu;

→ María Jóna Magnúsdóttir, framkvæmdastjóri Bílgreinasambandsins;

→ Hafsteinn Helgason, sviðsstjóri Þróunar hjá EFLU verkfræðistofu;

→ Auður Nanna Baldvinsdóttir, viðskiptaþróunarstjóri hjá Landsvirkjun og stjórnarformaður Grænu orkunnar;

→ Guðmundur B. Friðriksson, skrifstofustjóri Skrifstofu umhverfisgæða hjá Reykjavíkurborg;
→ Fundarstjóri var Þórhildur Fjóla Kristjánsdóttir, framkvæmdastjóri Grænni byggðar.

Morgunspjall um hönnun á skólalóðum fyrir vistvænar samgöngur

18/10/2019

Dagskráin:
→ Ólöf Kristjánsdóttir fagstjóri samgangna hjá Mannvit Verkfræðistofu flutti erindi byggt á gögnum úr og vinnu við Hjólreiðaáætlun Reykjavíkurborgar. 
→ Herborg Árnadóttir frá Alta Ráðgjöf flutti erindi byggt á MS-verkefni sínu sem byggir á virkum samgöngum útfrá sjónarhóli hreyfingar og hvernig hvernig megi hanna borgarumhverfi sem hvetji til þess.
→ Hermann Georg Gunnlaugsson frá Teiknistofunni Storð flutti erindi undir yfirskriftinni "Skólalóðin frá sjónarhorni barna - Hönnun skólalóða og sjálfbærar samgöngur" en Hermann varði nýlega meistararitgerð sína í skipulagsfræðum sem fjallaði um umhverfi leikskóla og áhrif þéttingu byggðar á leikskólalóðir.
→ Dagur Bollason frá Grænni byggð fjallaði um hver aðkoma stjórn- og skipulagsyfirvalda getur verið til þess að hlúa betur að sjálfbærum samgöngum á öllum skólastigum.

Morgunfundur um Svaninn

31/05/2019

Dagskráin:

→ Guðrún Lilja Kristinsdóttir frá Umhverfisstofnun/Svaninum fjallaði almennt um Svaninn fyrir íslenskar byggingar en Umhverfisstofnun er að vinna að Svansvottun í endurbætum á sínu skrifstofuhúsnæði í eigu Reita.
→ Finnur Sveinsson fór yfir reynsluna af notkun Svansins bæði í sínu eigin einbýlishúsi og einnig reynslunni við IKEA blokkina sem nýlega fékk Svansvottun.

→ Björn Marteinsson frá Háskóla Íslands fór yfir orkulausnina sem var valinn í Svansvottaða húsið hans Finns og Þórdísar.
→ Rakel Sif S. Thorarensen nýútskrifaður byggingartæknifræðingur, flutti áhugavert erindi um byggingarúrgang í samhengi við Svansvottaða byggingu.

Morgunspjall um Oakland EcoBlock

30/04/2019

Gregory Thompson er arkitekt og sérfræðingur hjá California Institute for Energy and Environment, sem er undirstofnun UC Berkeley. Hann fjallaði um Oakland EcoBlock verkefnið þar sem markmiðið er að útfæra heildstæða lausn til að stórbæta vistspor þegar byggðs umhverfis. Kynnir var Halldór Eiríksson hjá T.ark arkitektum.

​

Hægt er að skoða fyrirlestur Gregory's hér (á ensku).

Dagur Grænni Byggðar 2019

11/04/2019

​Ráðstefna um sjálfbærni í byggingariðnaði og skipulagi var haldin í HT103 á Háskólatorgi. Ráðstefnan var vel sótt og mörg fróðleg erindi voru flutt. 

​

Sjá viðburð á facebook hér.

​

Fyrirlestrar:

→ The Property Sectors Roadmap towards 2050 (á ensku)

(Katharina Bramslev, Framkvæmdastjóri, Norwegian Green Building Council);

→ Hugmyndir Byggingarfélags um bíllausan lífstíl 

(Magnús Jensen, Arkitekt, Miðgarðs byggingarfélags);

→ European trends in Green Buildings (á ensku)

(James Drinkwater, Forstjóri, European Green Building Councils);

→ Sjálfsþurft

(Margrét Harðardóttir, Arkitekt, Studio Granda);

→ Sjálf / bær

(Anna María Bogadóttir, Arkitekt);

→ Í eina átt 

(Ólöf Örvarsdóttir, Sviðsstjóri umhverfis- og skipulagssviðs Reykjavíkurborgar);

→ Grænar lausnir fyrir byggingar

(Helga Jóhanna Bjarnadóttir, Verkfræðingur og sviðsstjóri umhverfissviðs, EFLA);

→ Af hverju Vistvottun? 

(Jón Pálmi Guðmundsson, Framkvæmdastjóri, Urriðaholt);

→ Hvernig er að búa í vistvottuðu húsi? 

(Finnur Sveinssson, Umhverfisfræðingur og verkefnastjóri fyrsta svansvottaða hússins á Íslandi);

→ Ný rannsóknarverkefni um sjálfbærar byggingar

​(Ólafur H. Wallevik, Forstöðumaður Rb., NMÍ).

2019_GBDay_Agenda.tif

Morgunspjall um reynsluna af BREEAM vistvottunarkerfinu

21/03/2019

Dagskráin:

→ Egill Guðmundsson, arkitekt hjá ARKÍS fjallaði um reynslu þeirra, en ARKÍS hefur komið að fleiri verkefnum sem unnið hafa með BREEAM vottunarkerfið.
→ Olga Árnadóttir, arkitekt og verkefnistjóri umhverfismála hjá Framkvæmdasýslunni, fjallaði um niðurstöður í mastersverkefni sínu: Vistvottunarkerfið BREEAM Greining á aðlögunarhæfni matskerfisins að íslenskum aðstæðum

→ Karl Magnús Karlsson og Ólafur Axelsson hjá VA arkitektum  fjölluðu um Hönnun á Sundhöllinni sem nýlega hefur hlotið BREEAM hönnunarvottun.
→ Elín Vignisdóttir, landfræðingur hjá Verkís fjallaði um Reynslu ráðgjafa í BREEAM verkefnum.

Morgunspjall um ALDIN Biodome, ræktun kryddjurta og gróðurveggi

07/03/2019

Dagskráin:

→ Ræktun Kryddjurta

(Auður Rafnsdóttir, Höfundur bókarinnar: Kryddjurtaræktun fyrir  byrjendur);  

→ Gróðurveggir, gerðir, upsetning og umhirða

(Magnús Bjarklind, Garðyrkjufræðingur, EFLA);

→ Aldin Biodome verkefnið

(Hjördís Sigurðardóttir, Skipulagsfræðingur).

Morgunspjall um arkitektúr, vellíðan fólks og félagslega sjálfbærni

31/01/2019

Kynnir:

→ Hildigunnur Sverrisdóttir;

→ Hildur Gunnarsdóttir;

→ Áslaug Traustadóttir.

2019.01.31_Morning_talk_architecture.png

Morgunspjall um hönnun á gatnamótum fyrir fjölbreyttan ferðamáta

06/12/2018

Dagskráin:

→ Skipulagsmál og ferðavenjur

(Sóley Ósk Sigurgeirsdóttir, Skipulagsstofnun);

→ Borgin, áskoranir og framtíðarsýn varðandi fjölbreyttar samgöngur

(Edda Ívarsdóttir, Reykjavíkurborg);

→ Hönnunarleiðbeiningar

(Bryndís Friðriksdóttir, EFLA);

→ Hönnun gatnamóta með áherslu á almenningssamgöngur

(Lilja Guðríður Karlsdóttir, Viaplan);

→ Hönnun gatnamóta með tilliti til hjólreiða

(Hörður Bjarnason, Mannvit);

→ Hönnun gatnamóta við þjóðvegi

(Erna B. Hreinsdóttir, Vegagerðin).

Morgunspjall um viðmið fyrir vistvæna byggingu

22/11/2018

Hér má finna fyrirlestrana frá morgunspjallinu um viðmið fyrir vistvæna byggingu.  Við fengum fyrirlestra um:

→ Rýmisnýtingu og sveigjanleika frá Önnu Sigríði Jóhannsdóttur, VA arkitektar;

→ Efnisnotkun og úrgang frá Gyðu Mjöll Ingólfsdóttir, EFLU og Elínu Vignisdóttur Verkís;

→ Innivist frá Söndru Rán Ásgrímsdóttur, Mannvit

→ Lóðamál og vistvænar samgöngur, Ólöf Kristjánsdóttir, Mannvit

→ Orkumál og stýringu, frá Þórhildi Fjólu Kristjánsdóttir, Grænni byggð.

Ráðstefna um byggingarúrgang

08/11/2018

Haustráðstefna um byggingarúrgang var samvinnuverkefni milli FENÚR, Grænni byggðar og Samtaka iðnaðarins. Fundarstjóri var Bryndís Skúladóttir, ráðgjafi hjá VSÓ ráðgjöf.

​

Fyrirlestrar:

→ Source separation and organization og the work on construction site

(Eirik Wærner, Ráðgjafi hjá Multiconsult í Osló);

→ Niðurrif og nýbyggingar – staðan og áskoranir hjá Reykjavíkurborg

(Rúnar Gunnarsson, Deildarstjóri frumhönnunar hjá Reykjavíkurborg);

→ Getur BIM minnkað byggingarúrgang?

(Ingibjörg Birna Kjartansdóttir, BIM þróunarstjóri hjá ÍSTAK);
→ BREEAM verkefni hjá Framkvæmdasýslu ríkisins

(Olga Árnadóttir, Verkefnastjóri umhverfismála hjá Framkvæmdasýslu ríkisins);

→ Reynsla verktaka:

Eyjólfur Bjarnason, Gæðastjóri hjá Framkvæmdafélaginu Arnarhvoli;

Örn Tryggvi Johnsen, Verkefna- og rekstrarstjóri hjá ÞG Verk; 

→ Endurvinnslufarvegur byggingarúrgangs

(Arngrímur Sverrisson, Rekstrarstjóri hjá Gámaþjónustunni hf.);

→ Dæmi um endurvinnslu/endurnýtingu

(Harpa Þrastardóttir, Umhverfis- og gæðastjóri hjá Hlaðbæ Colas);

→ Reynsla úr norskum verkefnum

(Haukur Þór Haraldsson, Ráðgjafi hjá Verkís); 

→ Efnismiðlun Sorpu

(Guðmundur Tryggvi Ólafsson, Rekstarstjóri endurvinnslustöðva hjá Sorpu);

→ Leiðbeiningar um byggingarúrgang

(Jón Guðmundsson, Fagstjóri byggingarsviðs hjá Mannvirkjastofnun).

2018.11.08_Radstefna_um_byggingarurgang_logo.jpg

Umhverfisdagur Atvinnulífsins

17/10/2018

Framkvæmdastjóri Grænni byggðar, Þórhildur Fjóla Kristjánsdóttir hélt fyrirlestur um Vistvæn mannvirki á Umhverfisdegi atvinnulífsins.

Morgunspjall um vistferilsgreiningar og sjálfbærni í Grænlenskum byggingariðnaði

17/08/2018

Dagskráin:

→ Vistferilsgreiningar í byggingariðnaði eftir Gyðu Mjöll Ingólfsdóttur, umhverfisverkfræðing hjá EFLU.

→ â€‹Sjálfbærni áherslur í Grænlenskum Byggingariðnaði eftir Ragnar Ómarsson, byggingarfræðing hjá Verkís.

Morgunspjall um samgöngusamninga

01/03/2018

Virka Samgöngusamningar? Frá morgunspjalli Grænni byggðar þann 1. mars um samgöngusamninga:

→ Reynsla Orkuveitu Reykjavíkur, Hólmfríður Sigurðardóttir, Umhverfisstjóra hjá Orkuveitu Reykjavíkur; 

​→ Reynslan hjá Landspítalanum eftir Huldu Steingrímsdóttur;

→ Reynsla Reykjavíkurborgar eftir Lóu Birnu Birgisdóttur;

→ Reynsla Verkís eftir Elínu Vignisdóttur.

Morgunspjall Græna Stíginn í Græna Treflinum

31/01/2018

Kynnir:

→ Brynjólfur Jónsson framkvæmdastjóri Skógræktarfélags Íslands;

→ Þráinn Hauksson landslagsarkitekt hjá Landslag.

bottom of page